Óstöðugleiki kynvitundar

Magnús Orri Aðalsteinsson, BA-nemi í ensku og íslensku á Hugvísindasviði Háskóla Íslands, fjallar um hinseginleika í Undantekningu Auðar Övu.

Í háa herrans tíð hef ég verið hugfanginn af skáldskap Auðar Övu Ólafsdóttur og það er mikið gleðiefni að sjá nýju bókina hennar, Eden (2022), ná vinsældum. Af því tilefni langar mig að fjalla um aðra bók eftir hana, Undantekninguna (2012), sem er núna orðin 10 ára gömul. Sögur Auðar Övu eru oft og tíðum heillandi skoðun þess sem fellur utan hins almenna norms. Til dæmis fjallar Ungfrú Ísland (2018) um skáldkonu og samkynhneigðan sjómann á sjöunda áratug síðustu aldar. Efnistök Auðar eru eitthvað sem við getum gert okkur í hugarlund og hljómar ekki undarlega en er nógu langt utan þess sem almennt þykir til að gera söguna öðruvísi og jafnframt hinsegin. Hér er Undantekningin engin undantekning. Skáldskaparfræðin er þar í brennidepli og fagurfræðin í hávegum höfð, samanber undirtitilinn „de arte poetica“ (ísl. skáldskaparlistin). „De arte poetica“ verður þó ekki megináhersla þessarar umfjöllunar, fremur er ætlunin að skoða bókina með sérstakri hliðsjón af hinseginleika, bæði í skilningi kynhneigðar, kynvitundar og hugmynda um „öðrun“ (e. othering) en umfjöllun þess efnis er víða að finna í bókinni.

„en þá kemur upp þetta kynhneigðarvandamál“

Til að stikla á stóru fjallar Undantekningin um Maríu, móður tvíbura og konu í mannúðarstarfi sem tekur virkan þátt í þróunaraðstoð í stríðshrjáðum löndum. Bókin byrjar á gamlárskvöldi þar sem Flóki, eiginmaður hennar og barnsfaðir, kemur úr skápnum og segist eiga í ástarsambandi við samstarfsfélaga sinn og nafna, Flóka Karl. Eftir því sem líður á bókina kynnist María betur sálfræðingnum og rithöfundinum í kjallaraíbúðinni, Perlu, sem hjálpar henni eftir bestu getu að taka skilnaðinn í sátt. Perla er dvergur sem vinnur sem hjónabandsráðgjafi á daginn og leigupenni á næturnar og hún kemur mikið við sögu.

Þegar rætt er um hinseginleikann í Undantekningunni má fyrst nefna kynhneigð Flóka. Í byrjun bókarinnar flytur hann inn til ástmanns síns en hefur fyrir það verið giftur konu sem hann segist hafa elskað og elskar enn. Þetta hefur að sjálfsögðu mikil áhrif á Maríu og því oft rætt. Það er möguleiki að Flóki sé tvíkynhneigður, eða samkynhneigður með undantekningu eins og titill bókarinnar gefur til kynna. Það er ekki markmiðið hér að finna sjálfsmyndarstimpil fyrir Flóka, enda án efa vonlaust verkefni, en það er ljóst að hann hafði verið að prófa sig áfram þegar þau María byrjuðu að stinga saman nefjum og öðrum líkamspörtum.

Umræðan um kynhneigð Flóka mun hér víkja fyrir umfjöllun um Perlu sem er á margan hátt stórmerkileg hinsegin persóna. Hún er flókin og margvíð og líf hennar er að flestu leyti óhefðbundið. Fyrir utan að vera jaðarsett vegna líkamsgerðar er persónan sem lesandinn kynnist í bókinni að ýmsu leyti frábrugðin mörgum þeim normum sem við þekkjum svo vel. Perla er dularfull og fortíð hennar er óræð. Snemma í bókinni segir að hún hafi „dúkkað skyndilega upp […] eftir langa dvöl í útlöndum“ (bls. 15). María lýsir því að allt í einu, eitt kvöldið, hafi þau séð „rúmlega eins metra háa manneskju inn um gluggann sem stóð í áltröppum og var að lakka eldhússkápana bleika“ (bls. 15). Þetta kann að koma einkennilega fyrir sjónir og einnig er ýmislegt „á huldu um persónulega hagi hennar og einkum og sér í lagi fortíð hennar í útlöndum til margra ára“ (bls. 15). Á milli þess sem Perla fleygir í Maríu ráðleggingum fær lesandi að kynnast henni eilítið betur. Þegar María er í vangaveltum um blóðföður sinn annars vegar og uppeldisföður hins vegar upplýsir Perla hana til dæmis um að hún þekki föðurleysi af eigin raun. Að auki segir hún frá nokkrum skiptum í æsku þegar hún varð fyrir aðkasti fyrir að vera dvergur og sömuleiðis að enn séu til foreldrar sem kenna börnum sínum að benda og glotta yfir litlu fólki. Við hvert horn er Perla jaðarsett og fellur meira og meira í hóp þeirra sem ekki tilheyra hinu almenna heldur eru öðruvísi og hinsegin.

„grein um óstöðugleika kynvitundar“

Kynhneigð Perlu er óræð en hún er ekki í brennidepli skáldsögunnar heldur öðrun hennar og almennur hinseginleiki mun fremur. Mér er einkum minnisstætt að í einu samtalanna við Maríu nefnir hún rauðu seríuna í glugganum sem hjálpar blómunum að vaxa og dafna. Í þessu felst tvíræðni – Rauða serían er þekkt sería ástarsagna sem innihalda oft og tíðum opinskáar lýsingar á kynlífi. Með táknrænni túlkun má segja að Perla líti svo á að kynlíf og kynferðislegar fantasíur séu mannbætandi og hjálpi manni að vaxa sem manneskja. Hvað kynferðislíf varðar má einnig geta þess að í bókinni kemur skýrt fram að Perla er vel að sér í málefnum kynvitundar og kynhneigðar. Við Maríu nefnir sálfræðingurinn með meiru að hún hafi skrifað „grein um óstöðugleika kynvitundar í erlend fagtímarit“ og geti reynt að hafa einhvers staðar upp á henni (bls. 37). Þessi ummæli skipta lykilmáli í greiningu hinseginleikans í bókinni. Lesandinn veit að Perla þekkir málefnið nógu vel til að skrifa um það í fagrit og um leið er undirstrikað að í hennar augum er kynferðislíf menneskjunnar margbreytilegt og flókið en ekki dregið skýrum dráttum.

Flækjur kynferðislífsins eru mikilvægur hlekkur í bókinni og í því sambandi kemur nafngift Flóka síður en svo á óvart. Dyggir lesendur Auðar kannast eflaust við aukna merkingu í nöfnum sögupersóna. Sem dæmi má taka nafnið Jónas Ebeneser úr Ör (2016) en hann er vel fullorðinn og þunglyndur karl sem svipar til Ebenezer Scrooge í Christmas Carol (1843). Undantekningin er heldur engin undantekning frá þessari reglu því Flóki ber nafn með rentu. Í byrjun bókarinnar kemur hann út úr skápnum fyrir Maríu en kynhneigð hans er þó síður en svo einföld, né lögð skýrt fram – fremur má hún heita flókin.

„slíkt ofhlæði dramatískra atburða“

Einnig skiptir máli að Perla er að öllum líkindum höfundur bókarinnar. Frá upphafi er ýjað að því að Perla sé að skrifa hana og lesandi fær greinilega tilfinningu fyrir því. Perla nefnir reglulega að þótt furðulega megi hljóma séu aðstæður Maríu, sem og ýmis atvik sem henda hana, svipuð þeim sem hún er að skrifa í fyrstu skáldsöguna sína. Til að mynda má nefna þegar Perla segir að „þriðji kafli skáldsögunnar sem hún er að vinna að […] svipi skuggalega mikið til þess sem nágrannakona hennar á efri hæðinni er að ganga í gegnum“ (bls. 22). Dæmin verða svo tilviljanakenndari því sem líður á bókina og tilfinningin ágerist alveg fram í síðasta kafla þegar hún breytist í fullvissu. Bókinni lýkur þannig með bréfi Perlu sem hún lýkur með orðunum: „P.S. Handritið er á leið í prentsmiðju“ (bls. 285). Hlutverk Perlu sem höfundur bókarinnar hefur jafnvel þótt svo augljóst að danska þýðing Undantekningarinnar, Svaner bliver ikke skilt, ber nánast sama heiti og bók Perlu (Svanir skilja ekki: En það gera mennirnir). Mikil írónía er fólgin í þessu, til að mynda má nefna þegar Perla segir við Maríu: „Ef líf þitt væri skáldsaga, þá þætti slíkt ofhlæði dramatískra atburða ekki sannfærandi“ (bls. 172). Lesandi skynjar í gegnum alla bókina að hann sé að lesa skáldsögu.

Sé haft í huga að Perla sé höfundur bókarinnar er auðséð hve mikilvægt hinseginþemað er. Hún þekkir vel óstöðugleika kynvitundar og hefur reynt öðrun á eigin skinni. Hún dregur athygli að þessu með nafni Flóka. Þekking Perlu á hinseginleikanum skýrir af hverju bókin forðast að njörva niður fasta sjálfsmynd, hvort sem sú sjálfsmynd birtist en samkynhneigð eða önnur kynhneigð eða kynvitund. Skáldaði höfundurinn dregur fastmótaðar hugmyndir í efa og miðar að því að umbreyta hugmyndum okkar um kynvitund og kynhneigð, sem oftast ganga út frá rökföstum staðli. Mergur málsins er einmitt að sjálfsmyndin er alls ekki einföld, heldur þvert á móti tvíræð, margþætt, djúp og á það til að umbreytast með vindáttinni.

Undantekningin vinnur að því að kollvarpa hugmyndum lesandans um kynvitund og kynhneigð, þ.e. séu þær hugmyndir byggðar á einfeldni. Skáldaði höfundurinn dregur athygli að óstöðugleika kynvitundarinnar og þegar upp er staðið fjallar bókin um það ekki síður en skáldskaparlistina. Hvort sem um Perlu, Flóka eða aðrar persónur ræðir er hinseginþema bókarinnar sterkt, tekur á kynhneigð og kynvitund, öðrun þeirra sem standa utan þess sem kalla má venjulegt og aðkastinu og útskúfuninni sem þessir einstaklingar verða fyrir. Það liggur í augum uppi að umfjöllun Auðar Övu, sem og oft áður, stendur sína plikt utan normsins.

Magnús Orri Aðalsteinsson, BA-nemi í ensku og íslensku á Hugvísindasviði Háskóla Íslands.

Forsíðumyndrobert babiak

Heimildir: Auður Ava Ólafsdóttir. (2013). Undantekningin: de arte poetica. 2. útgáfa, kilja. (Upphafleg útgáfa 2012). Reykjavík: Bjartur.

content-1701

sabung ayam online

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

slot thailand

yakinjp

yakinjp

yakin jp

yakinjp id

maujp

maujp

maujp

maujp

sabung ayam online

sabung ayam online

judi bola online

sabung ayam online

judi bola online

slot mahjong ways

slot mahjong

sabung ayam online

judi bola

live casino

sabung ayam online

judi bola

live casino

SGP Pools

slot mahjong

sabung ayam online

slot mahjong

SLOT THAILAND

118000731

118000732

118000733

118000734

118000735

118000736

118000737

118000738

118000739

118000740

118000741

118000742

118000743

118000744

118000745

118000761

118000762

118000763

118000764

118000765

118000766

118000767

118000768

118000769

118000770

118000771

118000772

118000773

118000774

118000775

118000776

118000777

118000778

118000779

118000780

138000456

138000457

138000458

138000459

138000460

138000461

138000462

138000463

138000464

138000465

138000466

138000467

138000468

138000469

138000470

138000471

138000472

138000473

138000474

138000475

138000476

138000477

138000478

138000479

138000480

138000481

138000482

138000483

138000484

138000485

138000486

138000487

138000488

138000489

138000490

138000491

138000492

138000493

138000494

138000495

158000361

158000362

158000363

158000364

158000365

158000366

158000367

158000368

158000369

158000370

158000371

158000372

158000373

158000374

158000375

158000376

158000377

158000378

158000379

158000380

158000381

158000382

158000383

158000384

158000385

158000386

158000387

158000388

158000389

158000390

158000391

158000392

158000393

158000394

158000395

208000381

208000382

208000383

208000384

208000385

208000386

208000387

208000388

208000389

208000390

208000391

208000392

208000393

208000394

208000395

208000396

208000397

208000398

208000399

208000400

208000401

208000402

208000403

208000404

208000405

208000406

208000407

208000408

208000409

208000410

208000411

208000412

208000413

208000414

208000415

208000416

208000417

208000418

208000419

208000420

228000136

228000137

228000138

228000139

228000140

228000141

228000142

228000143

228000144

228000145

228000146

228000147

228000148

228000149

228000150

228000151

228000152

228000153

228000154

228000155

228000156

228000157

228000158

228000159

228000160

228000161

228000162

228000163

228000164

228000165

228000166

228000167

228000168

228000169

228000170

228000171

228000172

228000173

228000174

228000175

228000176

228000177

228000178

228000179

228000180

228000181

228000182

228000183

228000184

228000185

228000186

228000187

228000188

228000189

228000190

228000191

228000192

228000193

228000194

228000195

228000196

228000197

228000198

228000199

228000200

228000201

228000202

228000203

228000204

228000205

228000206

228000207

228000208

228000209

228000210

228000211

228000212

228000213

228000214

228000215

228000216

228000217

228000218

228000219

228000220

228000221

228000222

228000223

228000224

228000225

228000226

228000227

228000228

228000229

228000230

228000231

228000232

228000233

228000234

228000235

238000230

238000231

238000232

238000233

238000234

238000235

238000236

238000237

238000238

238000239

238000240

238000237

238000238

238000239

238000240

238000241

238000242

238000243

238000244

238000245

238000246

238000247

238000248

238000249

238000250

238000251

238000252

238000253

238000254

238000255

238000256

content-1701