Nína og Lorraine: Ástin, það er ástin

Birta B. Kjerúlf, BA-nemi í stjórnmálafræði og ritlist, skrifar um hómóerótík í ljóðum Nínu Bjarkar Árnadóttur.

Ljóðabókin Undarlegt er að spyrja mennina eftir Nínu Björk Árnadóttur kom út árið 1968 við góðar undirtektir. Ljóðin eru fáguð, mjúk og falleg. Einn undirkafli bókarinnar er titlaður „Til Lorraine“ og fjalla ljóðin í þeim kafla um samtal og samband tveggja kvenna. Það er nánast ómögulegt að líta fram hjá undirliggjandi rómantískum tilfinningum í ljóðunum og því vakna nokkrar spurningar: Hver er þessi Lorraine? Hvers eðlis er samband kvennanna í ljóðinu? Má halda því fram að í þeim sé undirliggjandi hómóerótík? Í þessari umfjöllun verður gerð einlæg atlaga að því að svara að þessum spurningum.

Lesbískt næmi og hómóerótík

Við hinsegin lestur skáldverka má beita greiningarhugtakinu lesbískt næmi til að greina undirliggjandi hómóerótík. Lillian Faderman (2017) kynnti hugtakið á tíunda áratug síðustu aldar en hún segir að lesbískt næmi sé til staðar í bókmenntum þegar lesendur finna sig knúna til að túlka verkið á hinsegin hátt. Þá sé tilfinning fólgin í verkinu sem kallar á að lesendur greini í því hinsegin sögulínur, persónur, tilfinningar eða upplifanir. Lesbíska næmið getur verið í verkinu fyrir tilviljun eða höfundur komið því þar fyrir af ásettu ráði. Hins vegar má velta því fyrir sér hvort ásetningur höfundar skipti yfirhöfuð nokkru máli ef lesendur greina lesbískt næmi í bókmenntaverkum. Þetta er stærri spurning en hægt er að svara í stuttu máli hér og leiðir að umræðunni um dauða höfundar. Því verður ekki staldrað lengur við þessa vangaveltu en gott er að hafa þetta á bak við eyrað þegar hinsegin lestur og næmi er annars vegar.

Faderman leggur áherslu á að lesbískt næmi eigi sérstaklega við í þeim tilfellum þar sem bókmenntaverk fjalla ekki hreint út um kynferðislegar ástir kvenna – enda væri næmið þá augljóst. Auk þess segir Faderman ekki nauðsynlegt að höfundurinn sé lesbía til að textinn innihaldi lesbískt næmi, því túlkunin á textanum liggi hjá lesendum sem yfirfæra lesbískt sjónarhorn á textann. Það getur verið með öllu ótengt kynhneigð höfundarins. Þó má geta þess að stundum sé lesbíska næmið einkum sterkt í textum þeirra höfunda sem við vitum fyrir víst að eru eða voru lesbíur eða hinsegin að öðru leyti (Faderman 2017, 185). Faderman notar hugtakið til að víkka út skilgreininguna á lesbískum bókmenntum og notkun þess opnar á fleiri sjónarhorn til að greina bókmenntir út frá lesbískum (og enn fremur hinsegin) sjónarhornum. Verk sem fjalla ekki hreint út um kynferðisleg tengsl kvenna en fela í sér lesbískt næmi geta þannig talist til lesbískra bókmennta, t.d. verk um rómantíska ást og vináttu kvenna, táknræn verk sem fjalla um ástir kvenna undir rós og verk sem fjalla um gagnkynja og gagnkynhneigð regluveldi á gagnrýninn hátt (Faderman 2017, 186).

Lorraine – sú sem heimurinn bar ofurliði

Þrátt fyrir að ævisögulegar staðreyndir um höfundinn séu óþarfi þegar greina á lesbískt næmi í bókmenntatextum þá er vissulega ekkert sem bannar að grafa slíkar staðreyndir upp, eins og áður hefur kmið fram. Sé leitað að upplýsingum um skáldkonuna Nínu Björk Árnadóttur og ljóðabók hennar, Undarlegt er að spyrja mennina, á veraldarvefnum koma fljótt upp þónokkur viðtöl við hana og umfjallanir um ýmis verk hennar. Einnig má í dagblaðinu Vísi árið 1968 finna viðtal við aðra konu að nafni Lorraine Glemby, sem kom í heimsókn til Íslands haustið 1967. Þar segist hún hyggja á að heimsækja landið á ný, einkum til að hitta vini sína sem mörg hver voru ung skáld. Þeirra á meðal var Nína Björk en Lorraine segir í viðtalinu: „ […] henni hef ég kynnzt vel hér á Íslandi“ (Vísir 1968). Ljóst er að vinskapur kvennanna var náinn. Það kemur meðal annars fram í viðtali mörgum árum seinna þar sem Nína Björk tileinkar leikrit sitt, Fugl sem flaug á snúru, kærri vinkonu sinni „sem heimurinn bar ofurliði“ (Jóhann Hjálmarsson 1985) en Lorraine féll frá fimm árum áður en leikritið var sett á svið. Stutt kynning á leikritinu gefur til kynna að það sé áhugavert viðfangsefni hinsegin lestrar en fram kemur að það fjalli um unga ást sem erfitt er að tjá. Í öðru viðtali um leikritið játar Nína enn fremur: „Ég orti eitt sinn ljóð til [Lorraine] sem er í bók minni „Undarlegt er að spyrja mennina“ […]“ (Morgunblaðið 1985). Hér staðfestir Nína að Lorraine í bókinni er í raun Lorraine Glemby. Þannig má geta sér þess til að vinskapur kvennanna hafi skipt þær nokkru máli og auðvelt er að gera sér í hugarlund að samband þeirra hafi verið náið. Þessar upplýsingar eru til þess fallnar að magna upp lesbíska næmið sem greina má í ljóðunum sem Nína tileinkaði Lorraine í Undarlegt er að spyrja mennina.

Djúpstæðar og rómantískar tilfinningar

„Ljóð tileinkuð Lorraine“er yfirheitið á þriðja hluta ljóðabókar Nínu en engin ljóðanna í þeim hluta bera titil, ólíkt öðrum ljóðum í bókinni. Því er ekki fullljóst hvort ljóðin séu aðskilin eða skuli lesin sem ein heild. Greinilegur þráður liggur milli þeirra allra og í raun gefur ljóðmælandi í skyn í upphafi að þau skapi saman sögu: „Á svart lauf / skrifaði myrkrið eina sögu / lét svo laufið vera hjá mér / eina stund“ (Nína Björk Árnadóttir, 33). Laufið er sagan og stundin er ljóðakaflinn. Umfjöllunarefni sögunnar er borið upp strax á næstu síðu: „Og við sátum undir trénu tvær systur“ (Nína Björk Árnadóttir, 34). Hér birtist tréð sem laufið féll af og undir því sitja þær tvær, konurnar sem sagan er um. Þær sitja þétt saman og hvíslast á, mikil nánd er á milli þeirra. Valið á orðinu „systur“ til að lýsa stöllunum gefur misvísandi skilaboð um samband kvennanna; mögulega er orðið notað til að undirstrika nándina eða til að hylma yfir raunverulegar tilfinningar milli kvennana — heimurinn var ef til vill ekki tilbúinn fyrir nákvæmari yfirlýsingar um eðli sambandsins. Næstu línur gefa hins vegar til kynna að það liggi strengur milli kvennanna, ástarstrengur. Yfir höfði þeirra flýgur vængur dáins fugls og þær játa: „Ástin það er ástin“ (Nína Björk Árnadóttir, 34). Ástin svífur yfir þeim í formi dauðs fugls, sem getur ekki boðað gott, og sú hugsun leitar á að ást þeirra sé dauðadæmd. Það helst í hendur við upphaf kaflans — saga þeirra er stutt, einungis ein stund. Mikið er um náttúrulýsingar í ljóðunum sem gefur þeim blíða og kvenlega áferð. Samskipti kvennanna eru í fyrirrúmi og nándin milli þeirra er áþreifanleg. Ljóðmælandi lofar vinkonu sinni að gæta óska hennar, líkir þeim við bláfjólur sem hún tínir og kemur fyrir inni hjá sér (Nína Björk Árnadóttir, 35). Blómvöndur er falleg gjöf sem ástvinir skiptast gjarnan á og myndin af blómunum í glugganum rennir stoðum undir það að sambandið sé rómantískt eðlis.

Í síðasta ljóðinu til Lorraine ráðleggur ljóðmælandi ástkonu sinni að „ganga í fjörunni / og gleyma því sem mennirnir segja, hvernig þú eigir að lifa“ (Nína Björk Árnadóttir, 36). Vísunin í „mennina“ sem segja þeim hvernig þær eiga að lifa er í mikilli andstöðu við önnur ljóð í kaflanum. Blíðleikinn og kvenleikinn sem einkennir þau stangast á við karlmennskuna sem birtist í „mönnunum“ og ráðsmennskunni sem þeir virðast þvinga upp á konurnar. Ráðlegging ljóðmælandans að „gleyma því sem mennirnir segja“ gefur til kynna nánd og samkennd en konurnar deila greinilega reynslu af því hvernig kvaðir kvenleikans hafa áhrif á þær í lífinu. Línan gæti því verið feminísk hvatning til vinkonu en einnig má túlka hana sem hvatningu til að lifa lífinu eins og vinkonan vill lifa því, án þess að fylgja reglum annarra. Ljóðmælandi minnir hana á „að friðurinn / hann er til“ (Nína Björk Árnadóttir, 36). Friðurinn til að elska án hafta, til að sigra lífið og til að hvílast að lokum. Aðdáunin er augljós í lok ljóðsins, ljóðmælandi ber ómælda ást til vinkonu sinnar og greinilegt er að tilfinningarnar eru djúpstæðar, rómantískar. Lesbíska næmið blasir við í hverri einustu ljóðlínu ef við viljum sjá það.

Birta B. Kjerúlf, BA-nemi í stjórnmálafræði og ritlist.

Mynd efst á síðu: Lorraine Glemby, myndasería sem birtist með viðtali í Vísi 2. febrúar 1968.

Heimildir:

  • „80% af bandarískum „hippíum“ neyta eiturlyfja – segir Lorraine Glemby.“ 1968. Vísir, 1. febrúar.
  • Faderman, Lillian. 2017. „Hvað eru lesbískar bókmenntir? Nýtt hefðarveldi í mótun,“ þýð. María Helga Guðmundsdóttir. Ritið 17 (2): 179–193.
  • „Fugl sem flaug á snúru. Leikritið er um ástina.“ 1985. Morgunblaðið, 5. maí.
  • Jóhann Hjálmarsson. 1985. „Svart lauf. Leiklist.“ Morgunblaðið, 14. maí.
  • Nína Björk Árnadóttir. 1968. Undarlegt er að spyrja mennina. Reykjavík: Almenna bókafélagið.
  • Skáld.is. „Nína Björk Árnadóttir.“. Sótt 22. febrúar 2023 af https://skald.is/skaldatal/243-nina-bjork-arnadottir
content-1701

yakinjp


sabung ayam online

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

yakinjp

judi bola online

slot thailand

yakinjp

yakinjp

yakin jp

ayowin

yakinjp id

mahjong ways

judi bola online

mahjong ways 2

JUDI BOLA ONLINE

maujp

maujp

sabung ayam online

sabung ayam online

mahjong ways slot

sbobet88

live casino online

sv388

taruhan bola online

maujp

maujp

maujp

maujp

sabung ayam online

118000156

118000157

118000158

118000159

118000160

118000161

118000162

118000163

118000164

118000165

118000166

118000167

118000168

118000169

118000170

118000171

118000172

118000173

118000174

118000175

118000176

118000177

118000178

118000179

118000180

118000181

118000182

118000183

118000184

118000185

118000186

118000187

118000188

118000189

118000190

118000191

118000192

118000193

118000194

118000195

118000196

118000197

118000198

118000199

118000200

128000166

128000167

128000168

128000169

128000170

128000171

128000172

128000173

128000174

128000175

128000176

128000177

128000178

128000179

128000180

128000181

128000182

128000183

128000184

128000185

128000186

128000187

128000188

128000189

128000190

128000191

128000192

128000193

128000194

128000195

138000131

138000132

138000133

138000134

138000135

138000136

138000137

138000138

138000139

138000140

138000141

138000142

138000143

138000144

138000145

138000146

138000147

138000148

138000149

138000150

138000151

138000152

138000153

138000154

138000155

138000156

138000157

138000158

138000159

138000160

148000166

148000167

148000168

148000169

148000170

148000171

148000172

148000173

148000174

148000175

148000176

148000177

148000178

148000179

148000180

148000181

148000182

148000183

148000184

148000185

148000186

148000187

148000188

148000189

148000190

148000191

148000192

148000193

148000194

148000195

168000136

168000137

168000138

168000139

168000140

168000141

168000142

168000143

168000144

168000145

168000146

168000147

168000148

168000149

168000150

168000151

168000152

168000153

168000154

168000155

168000156

168000157

168000158

168000159

168000160

168000161

168000162

168000163

168000164

168000165

178000166

178000167

178000168

178000169

178000170

178000171

178000172

178000173

178000174

178000175

178000176

178000177

178000178

178000179

178000180

178000181

178000182

178000183

178000184

178000185

178000186

178000187

178000188

178000189

178000190

178000191

178000192

178000193

178000194

178000195

178000196

178000197

178000198

178000199

178000200

178000201

178000202

178000203

178000204

178000205

178000206

178000207

178000208

178000209

178000210

188000226

188000227

188000228

188000229

188000230

188000231

188000232

188000233

188000234

188000235

188000236

188000237

188000238

188000239

188000240

188000241

188000242

188000243

188000244

188000245

188000246

188000247

188000248

188000249

188000250

188000251

188000252

188000253

188000254

188000255

198000151

198000152

198000153

198000154

198000155

198000156

198000157

198000158

198000159

198000160

238000031

238000032

238000033

238000034

238000035

238000036

238000037

238000038

238000039

238000040

238000136

238000137

238000138

238000139

238000140

238000141

238000142

238000143

238000144

238000145

238000146

238000147

238000148

238000149

238000150

238000151

238000152

238000153

238000154

238000155

238000156

238000157

238000158

238000159

238000160

238000161

238000162

238000163

238000164

238000165

238000166

238000167

238000168

238000169

238000170

238000171

238000172

238000173

238000174

238000175

content-1701