„Fyrir enga glæpi aðra en eigin bullsjóðandi kynvillu og ölvun“

 

Magnús Orri Aðalsteinsson, BA-nemi í ensku og íslensku á Hugvísindasviði Háskóla Íslands, fjallar um ljóðið „Howl“ eftir Allen Ginsberg.

Eftirstríðsárin, bæði hérlendis og vestanhafs, hafa lengi verið mér hugleikin, ekki síst bókmenntir tímabilsins. Eftir síðari heimstyrjöld hittust þrír bandarískir andófsmenn með sameiginlega hugsjón um nýja og endurbætta meðvitund – eins konar „Nýja sýn“ (e. New Vision). Þetta voru að sjálfsögðu þeir Jack Keruoac, William S. Burroughs og Allen Ginsberg.[1] Ásamt fleiri skáldum mynda þeir bítkynslóðina svokölluðu (e. The Beat Generation) sem einkenndist af andófsmenningu og uppreisn gegn yfirvaldi. Áhrif hennar á 20. öld voru mikil en því hefur meðal annars verið haldið fram að hippatímabilið og pönkið hefði aldrei getað átt sér stað nema fyrir þá braut sem bítið ruddi.[2] Ég mun hér einblína á ljóðskáldið Allen Ginsberg og hinsegin þætti í hans þekktasta verki, „Howl“ (1956), eða „Ýlfri“ eins og það útleggst á íslensku í þýðingu Eiríks Arnar Norðdahl.[3] Þar koma fram þættir sem áttu eftir að einkenna bítið, svo sem andóf, brjálæði, spíritismi og andlegir þættir og grófar kynferðislegar lýsingar. Yfirvöldum samtíma Ginsberg þótti ljóðið jafnvel svo gróft að útgefandinn þurfti að sæta réttarhöldum. Hann stóð þó uppi sem sigurvegari og raunar var það stórt skref til varnar tjáningarfrelsi í Bandaríkjunum.[4] Í ljóðinu eru sterkar hinsegin birtingarmyndir andófs og kynferðis, bæði í táknum og lýsingum Ginsberg á sínum uppáhalds brjálæðingum.

„Ég horfði á bestu hugsuði minnar kynslóðar tortímast úr brjálæði“

Allen Ginsberg

„Ýlfur“ var eitt áhrifamesta ljóð 20. aldarinnar og höfundinn sjálfan má setja á sama stall, enda hefur hann frá útgáfu þess árið 1956 verið miðlægur í bandarískri bókmenntasögu. Ljóðið byrjar sömuleiðis á einum þekktustu línum bandarískrar ljóðlistar: „Ég horfði á bestu hugsuði minnar kynslóðar tortímast úr brjálæði“.[5] Fyrsti hlutinn felur í sér lýsingar á þessum hugsuðum, uppátækjum þeirra og brjálæði. Í öðrum hluta ljóðsins kemur fram ein sterkasta andófsmynd þess en þar birtist táknið Moloch, forn guð sem hlaut barnafórnir samkvæmt goðsögninni en ég kem betur að honum síðar. Þriðji hluti ljóðsins er svo ákall til vinar Ginsbergs, Carls Solomon, sem hann hitti á geðveikrahæli í Rockland, Fjórði og síðasti hlutinn heitir „Neðanmálsgrein við Ýlfur,“ og er eins konar viðbót. Þar hrópar ljóðmælandinn „Holy“ eða „Heilagur“ ítrekað og lýsir yfir heilagleika alls í kringum hann, nefnir t.a.m. heilagleika nefsins og tungunnar, rassgatsins og getnaðarlimsins.[6]

„Hins eineygða flagðs gagnkynhneigðs dollars“

Andófið í „Ýlfri“ beinist ekki síst gegn sísgagnkynhneigða regluveldinu og kapítalísk ádeila er áberandi. Á sjötta áratug 20. aldar var blómaskeið iðnaðarkapítalisma og byggðist sjálfsmynd Bandaríkjamanna að miklu leyti á fylgispekt. Kapítalisminn var sem sagt orðinn að rótgrónum þætti sjálfsmyndar þjóðarinnar. Innan hins viðtekna staðals regluveldisins var enn fremur gerð krafa um gagnkynhneigð. Gert var ráð fyrir hefðbundinni kjarnafjölskyldu en kapítalisminn byggði á sterkum fasteignamarkaði þar sem húseigendur, yfirleitt millistéttafólk, gátu arfleitt börn sín að fasteignum. Til þess þurfti að sjálfsögðu börn og því voru gagnkynja hjónabönd talin lífsorka reglukerfisins.[7] Þetta kemur fremur skýrt fram í ljóði Ginsberg þegar hann bendir á örlög nokkurra brjálæðinganna:

sem glötuðu ástsveinum sínum í hendur fornu örlagaflagðanna þriggja, hins eineygða flagðs gagnkynhneigðs dollars, hins eineygða flagðs sem gægist úr móðurkviði, og hins eineyga flagðs sem gerir ekkert utan að sitja á rassinum og klippa niður spaklega gullþræðina, sem ofnir eru um örlög listamannsins[8]

Hér má sjá eina túlkun á grísku örlaganornunum úr Hercules (1997), frá Walt Disney Studio

Hér vísar Ginsberg til örlaganornanna úr grískri goðafræði og bendir á grimm örlög þeirra sem samþykkja hlutverk sín innan hins fastmótaða reglukerfisins eða afneita sjálfinu til að passa inn í heildarmyndina sem yfirvaldið hefur teiknað upp. Örlaganornirnar tákna handhafa hins viðtekna; yfirvaldið sjálft, sem mótar samfélagið eftir hentugleika og á forsendum efnahagsgróða. Með vísun til „hins gagnkynhneigða dollars“ undirstikar skáldið að kapítalisminn þröngvi sísgagnkynhneigðarhyggju á þegna sína.[9]

Moloch málverk:  Charles Foster’s, Bible Pictures and What They Teach Us. 1897

Annað tákn kapítalismans, sem er í raun sterkara og meira áberandi í ljóðinu er Moloch. Eins og fyrr segir er Moloch forn guð sem krafðist lífsfórna ungra barna. Með vísuninni er sýnt fram á sterk tengsl kynferðis og kapítalísma. Í ljóðinu birtist Moloch sem samsteypa steins og stáls sem rífur upp höfuðkúpur fórnarlamba sinna og étur heila þeirra og ímyndunarafl, á sama hátt og fylgispekt við kapítalsimann gerir. Rétt eins og börnum var fórnað til guðsins var hinsegin fólk Bandaríkjanna fast í kæfandi samfélagi sem þröngvaði hefðbundnum hugmyndum og stöðlum á þau. En bæði Ginsberg og það fólk sem hann talar um í „Ýlfri“ afneituðu gagnkynhneigðarhyggjunni sem þeir voru neyddir til að lifa við. Í stað þess opnaði skáldið öðruvísi og hinsegin umræðu um kynverund. Bítið hvarf frá þeirri hugmynd að kynlíf væri til þess eins að búa til erfingja – fleiri tannhjól í skrímslavélina – og hugsaði frekar um kynlíf sem ánægjulega og örvandi upplifun. Þar fór hæst sú hugmynd að prófa sig áfram með eigin kynverund og eiga í hinsegin samböndum. Umræðan vann að því að brjóta niður skömmina sem fylgdi flæðandi kynverund.[10] Andófið gegn og gagnrýnin á sísgagnkynhneigða regluveldið í ljóðinu er því skýr.

„og æptu yfir sig af fögnuði“

Allen Ginsberg

Ljóðið er þó ekki aðeins ádeila á sísgagnkynhneigt kapítalískt reglukerfi og á handhafa staðalsins, heldur fagnar það einnig og hefur í hávegum andófsmenninguna sjálfa.[11] Lýsingar Ginsbergs á þeim sem hann telur bestu hugsuði sinnar kynslóðar eru grófar en sömuleiðis upphefjandi. Í lýsingum sínum blandar hann saman hinu andlega og hinu líkamlega með því að samsama utangarðsmenn og engla – fyrir honum er það einn og sami hluturinn. Ginsberg segir t.d. í „Neðanmálsgrein við Ýlfur“: „Róninn er jafn heilagur og seraphim“[12]. Með því að bera saman heilagleika róna og englafylkingar spyrnir ljóðið gegn trúarlegu yfirvaldi og klæðir trúarlega og andlega eiginleika þess aftur í búning hreinnar trúar, sem er laus við allt moð og hverja þá spillingu og kúgun sem leynist innan trúarstofnanna (e. institutionalised religion). Hinseginleiki ljóðsins felst að mörgu leyti í andófi þess gegn kúgandi regluveldi, en lýsingar á kynlífi karla fara þar einnig mjög hátt. Í þeim lýsingum má þó einnig finna samsömun hins líkamlega og andlega. Hér má til dæmis nefna þegar ljóðmælandi talar um mennina „sem leyfðu háheilögum mótorhjólaköppum að ríða sér í rassgatið og æptu yfir sig af fögnuði“.[13] Vert er að nefna að háheilögu mótorhjólakapparnir vísa til hins fræga hjólagengis Hell‘s Angels, en þó er tenging heilagleika og kynferðis sannarlega til staðar. Ginsberg rís því gegn stofnun trúarbragða og kúgandi orðræðu um kynferði með grófum lýsingum á kynlífi og samsömun samkynja kynlífs við heilagleika, eitthvað sem kirkja þess tíma hefur eflaust talið guðlast.

„Heilagir hinir óþekktu kynvilltu og þjáðu betlarar, heilagir hinir herfilegu mannenglar“

„Ýlfur“ eftir Allen Ginsberg er mikilvægt ljóð í hinsegin bókmenntasögu. Áhrif þess enduróma í gegnum síðustu öld og fram til dagsins í dag. Opinská tjáning samkynhneigðar sem og kynferðis almennt spilar stóran þátt í andófi þess. Þó má ekki gleyma hvar meginbarátta bítkynslóðarinnar var háð – gegn regluveldinu sjálfu. Kapítalisma gagnkynhneigða sískynja karlmannsins sem mótar örlög annarra að vild og þröngvar upp á þegna sína hinu viðtekna og almenna, þ.e. því sem er hentugast og skilar sem mestum fjárhagslegum hagnaði. Regluveldi sem gengur þvert á vilja þeirra sem vilja sofa hjá hverjum sem er og elska hvern sem er. Lagaleg barátta Ginsbergs og útgefanda hans við yfirvaldið undirstrikar hvernig tjáningarfrelsi og hinseginbókmenntir tóku skref í rétta átt 1956. Í dag hefur bítkynslóðin mikið verið skoðuð af fræðasamfélaginu og því ber að fagna. Við höfum að einhverju leyti dregið lærdóm af sögunni. Að sjálfsögðu eigum við langt eftir en þó er það stórt skref að fjalla í ræðu og riti um hinsegin bókmenntir eins og bítkynslóðina, sem á árum áður var litin hornauga og hart gegn henni barist „fyrir enga glæpi aðra en eigin bullsjóðandi kynvillu og ölvun“.[14]


[1] Prothero, „On the Holy Road“, bls. 208–9.

[2] D’Angelo, „The History and Philosophy of the Postwar American Counterculture”, bls. 1.

[3] Þær línur úr ljóðinu sem birtast hér á eftir eru úr þýðingu Eiríks Arnar Norðdahl. Sjá: https://www.youtube.com/watch?v=1_qlwaO3ETY&t=373s&ab_channel=Eir%C3%ADkur%C3%96rnNor%C3%B0dahl.

[4] Ferlinghetti, Howl on Trial, bls. 3.

[5] Eiríkur Örn Norðdahl, „Á íslensku má alltaf finna Ginsberg“, mín. 00:04.

[6] Ginsberg, Howl, Kaddish and Other Poems, bls. 12.

[7] Jahin Kaissar, „Sexuality and its Relation to Capitalism, Religion, and Madness in Allen Ginsberg’s “Howl.”“, bls. 1292

[8] Eiríkur Örn Norðdahl, „Á íslensku má alltaf finna Ginsberg“, mín. 05:54.

[9] Jahin Kaissar, „Sexuality and its Relation to Capitalism, Religion, and Madness in Allen Ginsberg’s “Howl.”“,   bls. 1292.

[10] Jahin Kaissar, „Sexuality and its Relation to Capitalism, Religion, and Madness in Allen Ginsberg’s “Howl.”“,  bls. 1293.

[11] Jahin Kaiisar, „Sexuality and its Relation to Capitalism, Religion, and Madness in Allen Ginsberg’s “Howl.”“,   bls.1289

[12] Eiríkur Örn Norðdahl, „Á íslensku má alltaf finna Ginsberg“, mín. 22:43.

[13] Eiríkur Örn Norðdahl, „Á íslensku má alltaf finna Ginsberg“, mín. 05:20.

[14] Eiríkur Örn Norðdahl, „Á íslensku má alltaf finna Ginsberg“, mín. 05:08.

 

Heimildaskrá

D’Angelo, Ed. „The History and Philosophy of the Postwar American Counterculture: Anarchy, the Beats and the Psychedelic Transformation of Consciousness.“ Core, 2019. URL: https://philpapers.org/archive/DANTHA.pdf. Þetta er lengri útgáfa af grein höfundar sem birtist hér: D’Angelo, Ed. „Anarchism and the Beats.“ Í The Philosophy of the Beats, ritstýrt af Sharin Elkholy, bls. 335–357, Kentucky: University Press of Kentucky (2012).

Eiríkur Örn Norðdahl. „Á íslensku má alltaf finna Ginsberg.“ Youtube-myndband. 25:19 mínútur. 1. okt. 2020. https://youtu.be/1_qlwaO3ETY

Ferlinghetti, Lawrence. Howl on Trial: The Battle for Free Expression. New York: City Light Books, 2006.

Kaiissar, Jahin. „Sexuality and its Relation to Capitalism, Religion, and Madness in Allen Ginsberg’s “Howl.”“ International Journal of English Literature and Social Sciences, 5. árgangur, nr. 4, (2020), bls. 1289–1297. Doi: 10.22161/ijels.54.69

Prothero, Stephen. „On the Holy Road: The Beat Movement as Spiritual Protest.“ Harvard Theological Review, 84. árgangur, nr. 2 (1991), bls. 205–222. Doi: 10.1017/S0017816000008166

content-1701

sabung ayam online

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

slot thailand

yakinjp

yakinjp

yakin jp

yakinjp id

maujp

maujp

maujp

maujp

sabung ayam online

sabung ayam online

judi bola online

sabung ayam online

judi bola online

slot mahjong ways

slot mahjong

sabung ayam online

judi bola

live casino

sabung ayam online

judi bola

live casino

SGP Pools

slot mahjong

sabung ayam online

slot mahjong

SLOT THAILAND

118000731

118000732

118000733

118000734

118000735

118000736

118000737

118000738

118000739

118000740

118000741

118000742

118000743

118000744

118000745

118000761

118000762

118000763

118000764

118000765

118000766

118000767

118000768

118000769

118000770

118000771

118000772

118000773

118000774

118000775

118000776

118000777

118000778

118000779

118000780

138000456

138000457

138000458

138000459

138000460

138000461

138000462

138000463

138000464

138000465

138000466

138000467

138000468

138000469

138000470

138000471

138000472

138000473

138000474

138000475

138000476

138000477

138000478

138000479

138000480

138000481

138000482

138000483

138000484

138000485

138000486

138000487

138000488

138000489

138000490

138000491

138000492

138000493

138000494

138000495

158000361

158000362

158000363

158000364

158000365

158000366

158000367

158000368

158000369

158000370

158000371

158000372

158000373

158000374

158000375

158000376

158000377

158000378

158000379

158000380

158000381

158000382

158000383

158000384

158000385

158000386

158000387

158000388

158000389

158000390

158000391

158000392

158000393

158000394

158000395

208000381

208000382

208000383

208000384

208000385

208000386

208000387

208000388

208000389

208000390

208000391

208000392

208000393

208000394

208000395

208000396

208000397

208000398

208000399

208000400

208000401

208000402

208000403

208000404

208000405

208000406

208000407

208000408

208000409

208000410

208000411

208000412

208000413

208000414

208000415

208000416

208000417

208000418

208000419

208000420

228000136

228000137

228000138

228000139

228000140

228000141

228000142

228000143

228000144

228000145

228000146

228000147

228000148

228000149

228000150

228000151

228000152

228000153

228000154

228000155

228000156

228000157

228000158

228000159

228000160

228000161

228000162

228000163

228000164

228000165

228000166

228000167

228000168

228000169

228000170

228000171

228000172

228000173

228000174

228000175

228000176

228000177

228000178

228000179

228000180

228000181

228000182

228000183

228000184

228000185

228000186

228000187

228000188

228000189

228000190

228000191

228000192

228000193

228000194

228000195

228000196

228000197

228000198

228000199

228000200

228000201

228000202

228000203

228000204

228000205

228000206

228000207

228000208

228000209

228000210

228000211

228000212

228000213

228000214

228000215

228000216

228000217

228000218

228000219

228000220

228000221

228000222

228000223

228000224

228000225

228000226

228000227

228000228

228000229

228000230

228000231

228000232

228000233

228000234

228000235

238000230

238000231

238000232

238000233

238000234

238000235

238000236

238000237

238000238

238000239

238000240

238000237

238000238

238000239

238000240

238000241

238000242

238000243

238000244

238000245

238000246

238000247

238000248

238000249

238000250

238000251

238000252

238000253

238000254

238000255

238000256

content-1701