„Ég líka grét í hvert einasta skipti sem ég hlustaði á þetta“

Hulda Kristín Hauksdóttir, BA í almennri bókmenntafræði, ræddi við Evu Rún Snorradóttur um sviðsverkið Góða ferð inn í gömul sár.


Hulda Kristín Hauksdóttir, BA í almennri bókmenntafræði, ræddi við Evu Rún Snorradóttur um sviðsverkið Góða ferð inn í gömul sár.

Fór óvart á mis við þennan hluta sögunnar

Á dögunum var sett upp í Borgarleikhúsinu heimilda- og þátttökuverkið Góða ferð inn í gömul sár eftir Evu Rún Snorradóttur. Sýningin fjallaði um HIV-faraldurinn á Íslandi og fékk mikla athygli þrátt fyrir stuttan sýningartíma. Ég heyrði í Evu Rún og fékk að taka við hana stutt viðtal um sýninguna. Við byrjuðum á byrjuninni: Hvaðan spratt hugmyndin að skrifa um HIV á Íslandi?

„Hugmyndin um að skrifa um HIV á Íslandi spratt eftir að ég sá pláguþáttinn í seríunni Svona fólk sem Hrafnhildur Gunnarsdóttir gerði. Ég var á frumsýningu í Bíó Paradís og þar var pallborð með aðstandendum þáttarins eftir á og þetta var svo ótrúlega sterkt móment, fólk var bara grátandi þarna og ég upplifði bara: hérna er verið að opna fyrir eitthvað nýtt.“

Eva Rún er sjálf lesbía og segist hafa alltaf haldið að hún væri vel að sér í sögu hinsegin fólks en á þessu augnabliki hafi hún uppgötvað að óvart hafi hún farið á mis við þennan hluta sögunnar að miklu leyti. Við þessa uppgötvun fann hún fyrir sterkri löngun til að læra allt um þetta, lesa allt, hlusta á þessar sögur og taka þátt í að koma þeim áfram, því þessar sögur þarf að segja:

„Auðvitað hafði ég heyrt um HIV-faraldurinn, ég var barn og man eftir þessu að takmörkuðu leyti en ég hafði ekki þekkingu á því hversu gífurlega áhrifamikið þetta var. En allt í einu skildi ég allt rosalega vel, af hverju það er svona mikið bil milli kynslóða hinsegin fólks vegna bara skilningsskorts; hvernig eiga þau að skilja okkur ef við skiljum þau ekki,“ segir Eva. „Þess vegna fannst mér svo mikilvægt að hafa inni í þessu verki eitthvert kynslóðasamtal, fortíðina og samtímann í verkinu.“

Undirbjó sig í marga mánuði fyrir viðtölin

Eva Rún Snorradóttir. Ljósmyndari: Sigurjón Ragnar

Næst ræðum við um það hvernig hún nálgaðist efnið. Eva segist mjög oft fá innblástur frá fræðigreinum en í þetta skiptið hafi það ekki verið svo: „Þarna var það bara efniviðurinn, ég fór bara á tímarit.is og beinlínis gúglaði HIValnæmi endalaust og las allt sem ég komst yfir í íslenskum fjölmiðlum.“ Ásamt því að leita í íslenskar heimildir las hún mikið af erlendum bókum um efnið, horfði á kvikmyndir og reyndi eftir fremsta megni að öðlast einhvers konar heildarupplifun.

Þessi undirbúningur tók marga mánuði þar sem hún vildi vera vel undirbúin áður en hún fór að taka viðtölin sem heyrast í fyrri hluta leikritsins, hljóðupptökunni sem hlustað er á heima áður en leikhúsgestir leggja af stað. „Ég fór að gera svona skapandi æfingar fljótlega með rannsóknarvinnunni og lét verkið bara leiða mig. Það hefur alltaf reynst mjög vel,“ segir Eva.

Var næstum því búin að hætta við og gera hefðbundið verk

Verk Evu Rúnar eru oft frekar óhefðbundin og er Góða ferð inn í gömul sár engin undantekning. Ég vil forvitnast um hvort það hafi verið einhver sérstök ástæða eða kveikja sem hafi leitt hana þessa leið í sköpuninni. „Já,“ svarar Eva, „verkin mín hafa einhvern veginn bara alltaf verið óhefðbundin og ég held það komi bara því ég hef aldrei tekið þátt í þessari hefðbundnu uppfærslu á leiksýningu.“ Í þetta skiptið hafi hún þó á tímabili ætlað að skiljast við hugmyndina um að gera verkið að heimilda- og þátttökuverki. Það hafi þó ekki orðið úr því að breyta umgjörð verksins; henni fannst einfaldlega of mikilvæg þessi nánd sem þátttökuverkið skapar þar sem áhorfandanum er boðið að setja sig í ákveðnar stellingar og verður hluti af verkinu. „Það er bara reynsla mín af svona „immersive“ leikhúsi að það getur snert svo djúpt, auðvitað getur leiksýning á sviði gert það líka en á annan hátt.“

„Ég reyndi sem sagt að hætta við þessa upprunalegu hugmynd mína og skrifa einfaldlega leikrit. En það einhvern veginn bara gerðist ekki,“ heldur Eva áfram. „Mér fannst þetta verk alveg rosalega skýrt þurfa einveru áhorfenda, það kom mjög fljótt til mín, þetta er verk þar sem maður þarf að reyna að tengja inn á upplifanir fólks það mikið að fólk þurfi bara að vera eitt.“

Út frá þessu mótaði Eva svo form Góða ferð inn í gömul sár. Einveran skipti gríðarlegu máli til þess að skapa öruggt rými fyrir fólk að heyra hina erfiðu sögu sem fyrri hluti verksins byggir á og birtist í viðtölum við aðstandendur homma sem dóu úr alnæmi og fólk sem var viðloðandi réttindabaráttu eða umsjón með HIV-smituðum. Viðtölin sem Eva tók urðu beinn hluti af verkinu og það varð þannig hálf-skáldað og hálf-raunverulegt: „stundum tekur maður viðtöl til þess að gera eitthvað meira með efnið en það var bara svo mikið synd að fara að skrifa upp þessi viðtöl, þau urðu bara að heyrast.“

Í verkum sínum leikur Eva sér oft með að má út mörk milli hins skáldaða og raunverulega og í Góða ferð inn í gömul sár birtist þessi leikur til að mynda í sögumönnunum í hljóðverkinu. Þeir gegna hlutverki ímyndaðra látinna homma og tala oft beint til hlustenda. Með sögumönnunum skapast tenging milli heima hlustenda og HIV-smitaðra homma, hlustandinn hleypir sögunum heim til sín og skapar minningar um upplifunina í sínu eigin rými. Evu fannst þó ekki vera hægt að ljúka verkinu þannig að manneskjan væri ein: „það varð eitthvað að taka við, það varð eitthvað að taka utanum hana.“ Út frá þessu varð seinni hluti verksins til, samkoma þar sem öll kæmu inn með minningarnar úr hljóðverkinu og sama erfiða bakgrunninn. Í seinni hluta verksins yrði að draga verkið alveg inn í nútímann, þar myndi birtast hinsegin fólk sem yrði fyrir sams konar fordómum og hommar í alnæmisfaraldrinum.

Verkið varð einn mesti skóli hennar á ferlinum

Ljóst má vera að efni verksins er gríðarlega átakanlegt og því getur ekki hafa verið auðvelt að vinna með það. Eva staðfestir þetta og rifjar upp ferlið: „Ég líka grét í hvert einasta skipti sem ég hlustaði á þetta, sem var náttúrulega alveg brjálæðislega oft, og mér fannst ég alltaf upplifa eitthvað nýtt.“ Tvisvar í ferlinu þurfti hún að taka sér langar pásur vegna þyngdar efnisins. Það að vinna beint með harm fólks sem enn þá er á lífi hafi tekið mikið á: „En það kom mér strax mjög skemmtilega á óvart hvað allir voru rosalega þakklátir yfir því að ég væri að gera þetta, því ég var komin með svona komplex að ég væri nú ung lesbía sem hefði ekki upplifað þessa tíma og hvað væri ég að segja í þessari sögu.“ Hún hafi lagt gríðarlega áherslu á að nálgast efnið af virðingu, áhuga og samkennd.

Seinni hluti verksins var unnin mjög ólíkt því sem Eva gerir venjulega. Hún segist hafa þurft að sleppa takinu, leyfa verkinu að leiða sig áfram og gefa flytjendum rými til þess að skapa atriðin með sér. „Það að fá að kynnast þeim og fá að búa þetta til með þeim hefur verið bara einn mesti skólinn á mínum ferli,“ segir Eva. „Til dæmis er ég búin að vera að gera svona „immersive“ leikhús frá því 2008 og ég hafði aldrei áður skrifað aðgengislýsingu. Það er bara algjörlega fáránlegt og til skammar en það þýðir ekkert nema bara að læra af því. Og allt svona hvernig er talað um þetta, það þarf að passa sig að tala um alnæmisfaraldurinn og svo þarf líka að passa sig hvernig maður talar um fornöfn og kynjun á fólkinu sem er að taka þátt.“

Vildi skapa hinsegin sviðsverk um hinsegin málefni

„Ég lít svo á að það hafi verið mjög mikill innblástur fyrir mig að vera hinsegin. Það er mjög stór þáttur í því að ég fór að vera sviðslistakona. Þá fattar maður og sér að allt er handrit: okkar heterónorm, neyslumenningin, afþreying, bara hversdagurinn okkar; hvernig við eigum að haga okkur, hvernig samskipti eiga að vera, um hvað við eigum að láta okkur dreyma, hvað við eigum að vona,“ segir Eva Rún. Þetta handrit verði svo skýrt þegar fólk upplifi að það passi ekki inn í það. Hugmyndin um að vinna með óskýr mörk hafi fæðst út frá þessu.

„Mér finnst alltaf rosalega sterkt að búa til eitthvað, setja saman hluti þar sem einhvers staðar er eitthvað óljóst, einhvers konar rof.“ Með því að skapa eitthvað með óskýrum mörkum er hægt að fá áhorfendur til þess að setja sjálfir spurningamerki við forsendur hlutanna, rétt eins og hinsegin fólk gerir við hið normatífa handrit að lífinu. Í seinni hluta verksins hafi hún leikið með mörkin í rýminu: „Ég tala um þetta sem svona samkomusal, samkomurými, og þú veist þetta er tímabundinn klúbbur, sem er samt einhvern veginn ekki klúbbur heldur er þetta sýning. Hvað er þetta? Það er óljóst.“ Með þessum óljósu mörkum leitast Eva við að undirstrika hinseginleikann sem umvefur verkið í heild; hún fjallar um hinsegin efnið á hinsegin hátt.

Hulda Kristín Hauksdóttir, BA í almennri bókmenntafræði.

content-1701

yakinjp


sabung ayam online

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

yakinjp

judi bola online

slot thailand

yakinjp

yakinjp

yakin jp

ayowin

yakinjp id

mahjong ways

judi bola online

mahjong ways 2

JUDI BOLA ONLINE

maujp

maujp

sabung ayam online

sabung ayam online

mahjong ways slot

sbobet88

live casino online

sv388

taruhan bola online

maujp

maujp

maujp

maujp

sabung ayam online

118000156

118000157

118000158

118000159

118000160

118000161

118000162

118000163

118000164

118000165

118000166

118000167

118000168

118000169

118000170

118000171

118000172

118000173

118000174

118000175

118000176

118000177

118000178

118000179

118000180

118000181

118000182

118000183

118000184

118000185

118000186

118000187

118000188

118000189

118000190

118000191

118000192

118000193

118000194

118000195

118000196

118000197

118000198

118000199

118000200

128000166

128000167

128000168

128000169

128000170

128000171

128000172

128000173

128000174

128000175

128000176

128000177

128000178

128000179

128000180

128000181

128000182

128000183

128000184

128000185

128000186

128000187

128000188

128000189

128000190

128000191

128000192

128000193

128000194

128000195

138000131

138000132

138000133

138000134

138000135

138000136

138000137

138000138

138000139

138000140

138000141

138000142

138000143

138000144

138000145

138000146

138000147

138000148

138000149

138000150

138000151

138000152

138000153

138000154

138000155

138000156

138000157

138000158

138000159

138000160

148000166

148000167

148000168

148000169

148000170

148000171

148000172

148000173

148000174

148000175

148000176

148000177

148000178

148000179

148000180

148000181

148000182

148000183

148000184

148000185

148000186

148000187

148000188

148000189

148000190

148000191

148000192

148000193

148000194

148000195

168000136

168000137

168000138

168000139

168000140

168000141

168000142

168000143

168000144

168000145

168000146

168000147

168000148

168000149

168000150

168000151

168000152

168000153

168000154

168000155

168000156

168000157

168000158

168000159

168000160

168000161

168000162

168000163

168000164

168000165

178000166

178000167

178000168

178000169

178000170

178000171

178000172

178000173

178000174

178000175

178000176

178000177

178000178

178000179

178000180

178000181

178000182

178000183

178000184

178000185

178000186

178000187

178000188

178000189

178000190

178000191

178000192

178000193

178000194

178000195

178000196

178000197

178000198

178000199

178000200

178000201

178000202

178000203

178000204

178000205

178000206

178000207

178000208

178000209

178000210

188000226

188000227

188000228

188000229

188000230

188000231

188000232

188000233

188000234

188000235

188000236

188000237

188000238

188000239

188000240

188000241

188000242

188000243

188000244

188000245

188000246

188000247

188000248

188000249

188000250

188000251

188000252

188000253

188000254

188000255

198000151

198000152

198000153

198000154

198000155

198000156

198000157

198000158

198000159

198000160

238000031

238000032

238000033

238000034

238000035

238000036

238000037

238000038

238000039

238000040

238000136

238000137

238000138

238000139

238000140

238000141

238000142

238000143

238000144

238000145

238000146

238000147

238000148

238000149

238000150

238000151

238000152

238000153

238000154

238000155

238000156

238000157

238000158

238000159

238000160

238000161

238000162

238000163

238000164

238000165

238000166

238000167

238000168

238000169

238000170

238000171

238000172

238000173

238000174

238000175

content-1701