„Ég hef ákveðið að hætta að skilgreina mig sem kven-eitthvað eða karl-eitthvað“

Unnur Steina K. Karls, meistaranemi í almennri bókmenntafræði.

Um kynseginleika í íslenskum skáldsögum

Bókmenntir hafa frá upphafi fjallað um fjölbreytileika kyns og kynvitundar en það var ekki fyrr en nýlega að eiginlegar kynsegin persónur tóku að birtast í íslenskum skáldsögum. Hér á eftir verður fjallað um sex slíkar bækur, sem allar komu út á síðustu fimm árum, en auk þeirra má nefna Hans Blævi (2018) eftir Eirík Örn Norðdahl. Þau orð og hugtök sem við notum í dag til að lýsa kynseginleika eru langflest nýyrði og áður en þau ruddu sér rúms í íslenskri tungu var erfiðara að fjalla um málefnið. Auknum sýnileika kynsegin fólks í samfélaginu mun þó vonandi fylgja aukinn sýnileiki í íslenskum skáldsögum.

Kynsegin persónur í aukahlutverkum

Skáldsagan Móðurhugur (2017) eftir Kára Tulinius er ein fyrsta íslenska bókin, ef ekki sú fyrsta, þar sem fornafnið hán er notað. Ein af aukapersónunum, Lionel, er kynsegin og notar fornafnið hán. Lítið kemur fram um hán annað en að háni var útskúfað úr samfélaginu þegar hán kom út úr skápnum. Lionel missti forræði yfir dóttur sinni fyrir að vera kynsegin og þrátt fyrir að vera með meistaragráður fær hán ekki að kenna og engar bækur útgefnar. Lionel býr ásamt ástmanni sínum Jerome í litlu húsi á afskekktum stað og virðist forðast samfélagið sem fordæmdi hán.

Í bók Ævars Þórs Benediktssonar Drengurinn með ljáinn (2022)er einnig aukapersóna sem er kynsegin og jafnframt er persónufornafn forsætisráðherra Íslands hán í Arnaldur Indriðason deyr (2021)eftir Braga Pál Sigurðarson. Persónur sem þessar, sem eru í litlum hlutverkum, virðast ekki skipta miklu máli í fyrstu en í raun eru þær mikilvægt skref í átt til þess að gera kynsegin fólk sýnilegra og festa fornafnið hán í sessi í íslenskri tungu.

Hér er hán, um hán, frá háni, til háns

Þekkingarleysi og fordóma gagnvart kynsegin fólki má einnig finna í íslenskum skáldsögum. Sem dæmi má nefna Að eilífu ástin (2018) eftir Fríðu Bonnie Andersen og Dauðabókina (2020)eftir Stefán Mána. Í fyrri bókinni segir persónan Sigga að í raun mætti segja að „Guð sé hán“ og að orðið hán þýði „eitthvað sem skilgreinir sig hvorki sem karl né konu“.[2] Þarna birtist sá algengi misskilningur að persónufornafnið hán sé nafnorð sem lýsi kynvitund. Sigga er trans kona sem vinnur á elliheimili og hefur reynt að upplýsa og fræða heimilisfólk um hvað það er að vera trans en þrátt fyrir það virðist hún ekki fullkomlega skilja hvernig nota eigi fornafnið hán.

Í Dauðabókinni leiðir morðmál rannsóknarlögreglumanninn Hörð Grímsson að trans málefnum. Hugmyndir hans um trans fólk einkennast af mikilli vanþekkingu og fordómum þar sem hann segir meðal annars um kynsegin fólk: „Það má ekki einu sinni flokka fólk eftir kynfærum lengur því sumir eru hvorki karl né kona heldur eitthvað sem heitir hán, hvað sem það nú er.“[3] Hér kemur aftur upp fyrrnefndur misskilningur þar sem Hörður notar fornafnið hán rangt. Hvergi í bókinni eru skoðanir Harðar og þær rangfærslur sem hann setur fram gagnrýndar eða vegið á móti þeim. Sérstaklega má tilgreina orðræðu hans um morðingja bókarinnar sem er trans einstaklingur. Hörður segir morðingjann hvorki vera konu né mann (morðinginn er þó samkvæmt lýsingum trans maður) og tengir það við andlegt ójafnvægi, afbrigðileika og verknað hans.[4] Eru þessar skaðlegu hugmyndir Harðar síðar staðfestar þar sem morðinginn er vistaður á réttargeðdeild.

Litli garðurinn

Skaðlegar umfjallanir líkt og í fyrrnefndum bókum eru sem betur fer fátíðar en dæmi um jákvæðari birtingarmynd fá finna í skáldsögunni Litli garðurinn (2020)eftir Láru Óskarsdóttur. Sagan gerist á tveimur tímabilum, á tíunda áratugnum og í samtímanum. Á fyrra tímabilinu fjallar sagan um Elínu og Stef, sem lesendur kynnast fyrst sem Stefano/Stefí. Stef kemur út sem kynsegin í bókinni en þegar Elín og Stef kynnast fyrst er Stef að hætta störfum hjá lögreglunni og að hefja feril sinn sem dragdrottning. Hán segir frá því hvernig hán hafi vitað frá unga aldri að hán hafi ekki fæðst í því kyni sem háni var ætlað:

Þegar ég var þriggja ára, byrjaði ég að klæða mig úr strákafötunum mínum og fara í kjóla sem frænka mín átti. Hún greiddi á mér hárið og setti í það spennur.[5]

Viðbrögð foreldranna við þessari hegðun voru neikvæð. Þau bönnuðu frænkunni að koma oftar í heimsókn, sendu Stef í strákabúðir og neyddu hán til að bæla kynvitund sína. Hán segist hafa viljað þóknast foreldrum sínum en nú séu þau bæði látin og því getur hán loksins lifað eins og hán vill.

Hingað til hefur Stef hvorki fundið sig sem karl eða konu en þó leikið bæði hlutverk sem Stefano og Stefí. Hán nýtir sér það að geta klætt sig í karlmannsföt og verið álitið karlmaður en klæðist aðallega kjólum heima hjá sér. Kvenlega hliðin kemur svo sterkt fram í draginu þar sem hán nýtur þess að vera mjög kvenlegt. Að lokum fær Stef þó nóg af því að leika þessar tvær manneskjur, karlmanninn Stefano og kvenmanninn Stefí. Þegar hán kemur út úr skápnum segir hán Elínu að hán hafi ákveðið að hætta að skilgreina sig eftir kynjatvíhyggjunni. Þá tekur hán upp nafnið Stef þar sem hin nöfnin eru tengd ákveðnum kynjum.

Þar sem saga Stefs gerist eins og áður segir á tíunda áratugnum voru þau orð sem við notum í dag ekki til, því notar hán sem dæmi ekki orðið kynsegin. Stef segist einnig vera sama um fornöfn en á þessum tíma hafði Stef ekki úr öðru að velja en hún eða hann þar sem hán hafði ekki enn verið búið til. Í þeim hluta sem gerist í samtímanum vísar Katrín, dóttir Elínar, þó til Stefs með fornafninu hán og má þar greina þessa þróun orðræðunnar beint. En eins og sálfræðingur Katrínar segir þegar hún spyr hvort það sé ekki sérstakt að Stef hafi skilgreint sig utan kynjatvíhyggjunnar í mörg ár, þá hefur kynsegin fólk alltaf verið til þó það hafi ekki verið til ákveðin orð um það fyrr en nýlega.

Saga Stef er mjög falleg og byggir að mestu leyti á gleði. Þrátt fyrir að þurfa að fela kyngervi sitt lengi vel endar saga háns á því að hán hefur fundið sig, er glatt og hefur meira að segja látið drauma sína rætast um að opna eigin dragklúbb og verða fræg dragdrottning. Sögur sem þessar, þar sem saga kynsegin persóna er sögð með mikilli virðingu og byggir ekki á fordómum heldur þeirri lífsgleði sem fylgir að geta verið man sjálft, eru gríðarlega mikilvægar. Vonandi munu þær bækur í framtíðinni sem fjalla um kynsegin persónur taka svona birtingarmyndir til fyrirmyndar.

Unnur Steina K. Karls, meistaranemi í almennri bókmenntafræði.


[1] Lilja Óskarsdóttir, Litli garðurinn, (Reykjavík: Lára Óskarsdóttir, 2020), bls. 171.

[2] Fríða Bonnie Andersen, Að eilífu ástin, (Reykjavík: Bjartur, 2018), bls. 204.

[3] Steinar Bragi, Dauðabókin, (Reykjavík: Sögur, 2020), bls. 205.

[4] Sama heimild, bls. 274.

[5] Lilja Óskarsdóttir, Litli garðurinn, (Reykjavík: Lára Óskarsdóttir, 2020), bls. 69.

content-1701

sabung ayam online

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

slot thailand

yakinjp

yakinjp

yakin jp

yakinjp id

maujp

maujp

maujp

maujp

sabung ayam online

sabung ayam online

judi bola online

sabung ayam online

judi bola online

slot mahjong ways

slot mahjong

sabung ayam online

judi bola

live casino

sabung ayam online

judi bola

live casino

SGP Pools

slot mahjong

sabung ayam online

slot mahjong

SLOT THAILAND

118000731

118000732

118000733

118000734

118000735

118000736

118000737

118000738

118000739

118000740

118000741

118000742

118000743

118000744

118000745

118000761

118000762

118000763

118000764

118000765

118000766

118000767

118000768

118000769

118000770

118000771

118000772

118000773

118000774

118000775

118000776

118000777

118000778

118000779

118000780

138000456

138000457

138000458

138000459

138000460

138000461

138000462

138000463

138000464

138000465

138000466

138000467

138000468

138000469

138000470

138000471

138000472

138000473

138000474

138000475

138000476

138000477

138000478

138000479

138000480

138000481

138000482

138000483

138000484

138000485

138000486

138000487

138000488

138000489

138000490

138000491

138000492

138000493

138000494

138000495

158000361

158000362

158000363

158000364

158000365

158000366

158000367

158000368

158000369

158000370

158000371

158000372

158000373

158000374

158000375

158000376

158000377

158000378

158000379

158000380

158000381

158000382

158000383

158000384

158000385

158000386

158000387

158000388

158000389

158000390

158000391

158000392

158000393

158000394

158000395

208000381

208000382

208000383

208000384

208000385

208000386

208000387

208000388

208000389

208000390

208000391

208000392

208000393

208000394

208000395

208000396

208000397

208000398

208000399

208000400

208000401

208000402

208000403

208000404

208000405

208000406

208000407

208000408

208000409

208000410

208000411

208000412

208000413

208000414

208000415

208000416

208000417

208000418

208000419

208000420

228000136

228000137

228000138

228000139

228000140

228000141

228000142

228000143

228000144

228000145

228000146

228000147

228000148

228000149

228000150

228000151

228000152

228000153

228000154

228000155

228000156

228000157

228000158

228000159

228000160

228000161

228000162

228000163

228000164

228000165

228000166

228000167

228000168

228000169

228000170

228000171

228000172

228000173

228000174

228000175

228000176

228000177

228000178

228000179

228000180

228000181

228000182

228000183

228000184

228000185

228000186

228000187

228000188

228000189

228000190

228000191

228000192

228000193

228000194

228000195

228000196

228000197

228000198

228000199

228000200

228000201

228000202

228000203

228000204

228000205

228000206

228000207

228000208

228000209

228000210

228000211

228000212

228000213

228000214

228000215

228000216

228000217

228000218

228000219

228000220

228000221

228000222

228000223

228000224

228000225

228000226

228000227

228000228

228000229

228000230

228000231

228000232

228000233

228000234

228000235

238000230

238000231

238000232

238000233

238000234

238000235

238000236

238000237

238000238

238000239

238000240

238000237

238000238

238000239

238000240

238000241

238000242

238000243

238000244

238000245

238000246

238000247

238000248

238000249

238000250

238000251

238000252

238000253

238000254

238000255

238000256

content-1701