Að finna sig ekki í tímanum

 

Unnur Steina K. Karls, meistaranemi í almennri bókmenntafræði, skrifar um smásagnasafnið Sápufuglinn (2022) eftir Maríu Elísabetu Bragadóttur.

Um smásagnasafnið Sápufuglinn eftir Maríu Elísabetu Bragadóttur

Þegar fyrsta bók höfundar slær í gegn skapast oft mikil pressa á hann að koma með þá næstu. Fyrsta smásagnasafn Maríu Elísabetar Bragadóttur, Herbergi í öðrum heimi (2020), kom út við mikið lof. Það kom því eflaust mörgum á óvart að önnur bók hennar, Sápufuglinn (2022), er lítil og geymir aðeins þrjár smásögur. Þrátt fyrir að vera óvenju lítil fjallar bókin (sem virðist frekar eiga heima í jakkavasa en stórri bókahillu) um stór málefni. Eins og segir aftan á kápu Sápufuglsins fjalla sögurnar um „losta, valdadýnamík í samböndum, flókna kynverund og arfgengan hæfileika til að ferðast um í tíma“.[1] Sögurnar eiga það einnig sameiginlegt að fjalla á einn eða annan hátt um hinseginleika þar sem persónur þeirra eru flestar á einhvern hátt á skjön.

„Ertu eikynhneigð?“

Titilsagan segir frá nafnlausri aðalsögupersónu sem lifir fremur óspennandi lífi þar til hún kynnist Jóhönnu, konu sem er þrettán árum eldri en hún. Aðalsögupersónan finnur ekki fyrir kynferðislegri löngun og telur sig afbrigðilega vegna þess: „Ég hafði enga reynslu af því að laðast kynferðislega að annarri manneskju. […] Ekki einu sinni sem unglingur. Það gerðist bara ekki“ (44). Í fyrstu þorir hún ekki að bera þetta undir Jóhönnu þar sem hún hræðist höfnun en segir henni að lokum að hún búi ekki yfir kynhvöt. Jóhanna spyr hana þá hvort hún sé eikynhneigð (e. asexual) og fær aðalsögupersónan þar loksins orð sem nær yfir tilfinningar hennar. Áhugavert er að Jóhanna, sem einnig er hinsegin, sé sú færir henni þetta orð og ítrekar að það sé ekkert að aðalsögupersónunni, hún sé fullkomin eins og hún er.

Öðruvísi samband

Eftir fyrrgreint samtal býður Jóhanna aðalsögupersónunni að flytja inn til sín og þær byrja í einhvers konar sambandi: „Fyrstu næturnar sváfum við saman í óslitnu faðmlagi en hún kyssti mig ekki og ég kyssti hana ekki. Við þrýstum líkömunum saman af þrá sem var ekki af kynferðislegum toga“ (54). Þær eiga erfitt með að skilgreina samband sitt þar sem það er hvorki kynferðislegt né rómantískt en þó meira en „bara“ vinátta:

Núna sagði ég [pabba] að ég væri í rauninni byrjuð í sambandi. Það væri hægt að kalla það samband en í raun væri það handan skilgreininga, að minnsta kosti fyrir mér. Það væri mjög sérstakt. […] Ég sagði að við værum ekki bara vinkonur, við værum eitthvað annað og meira, í rauninni, og samt ekki, en samt (72-74).

Samband þeirra er því hinsegin á tvo vegu. Í fyrsta lagi eru þær báðar konur og því er sambandið samkynja og í öðru lagi fellur það utan almennra skilgreininga á samböndum. Það lýsir sér þó eins og hinseginplatónskt samband (e. queerplatonic relationship) en það hugtak hefur verið notað yfir sambönd sem fyrirfinnast einna helst innan samfélags eikynhneigðra. Þau einkennast af því að vera hvorki kynferðisleg né rómantísk en skuldbindingin og dýptin er meiri en gengur og gerist í hefðbundinni vináttu.[2] Þetta sambandsform er í eðli sínu hinsegin líkt og Julie Sondra Decker bendir á í bók sinni The Invisible Orientation: An Introduction to Asexuality en þar segir hún það vera „á einhvern hátt á skjön – ekki vinir, ekki rómantískir makar, heldur eitthvað annað“.[3]

Sápufugl sem er ekki sápa og ekki fugl

Þegar Ýr, gömul og góð vinkona Jóhönnu, fer að koma reglulega í heimsókn kemur óöryggi aðalsögupersónunnar aftur upp á yfirborðið. Henni líður illa með að Ýr sé að koma inn á heimili þeirra og finnst stafa ógn af henni: „Ýr vildi eiga í stöðugu trúnaðarsamtali og stundum heyrði ég Jóhönnu deila einhverju með henni sem hún hafði ekki sagt við mig“ (67). Einnig fer aðalsögupersónan að hafa áhyggjur af aldursmuninum á þeim Jóhönnu og hræðast að Jóhanna verði skotin í annarri stelpu, sé ósátt með að stunda ekki kynlíf og vilji binda enda á sambandið. Þetta óöryggi er beintengt bæði eikynhneigð aðalsögupersónunnar og nærveru Ýrar en hún óttast að Ýr muni hvetja Jóhönnu til að slíta sambandinu: „Það er ekki heilbrigt að vera í ástarsambandi og stunda ekki kynlíf, myndi hún segja“ (75).

Sápufuglinn sem aðalsögupersónan kaupir fyrir Jóhönnu verður hér meira en bara gjöf, hann verður tákn fyrir eitthvað sem getur bjargað sambandi þeirra: „Þetta var lítil tækifærisgjöf en ég var farin að mikla hana fyrir mér. Eins og það væri heilmikið í húfi og allt undir sápufuglinum komið“ (70). Sögunni lýkur þar sem sápufuglinn liggur brotinn í ruslinu því aðalsögupersónan telur ómögulegt að laga hann en því trúir hún mögulega líka um sjálfa sig sem eikynhneigðan einstakling og samband sitt við Jóhönnu.

Að eiga og að eiga ekki afmæli á sama tíma

„Til hamingju með afmælið“ fjallar um ónefnda aðalsögupersónu sem hittir ungan mann að nafni Högni. Þrátt fyrir að hann sé „alkahólisti og spíttfíkill, nýkominn úr meðferð“ er aðalsögupersónan heilluð af honum (12):

Það er yfirhöfuð ótrúlegt að hann hafi fæðst á þessum kalda útnára. Ég get ekki séð hann fyrir mér ganga niður Rauðarárstíg í blýgrárri norðanátt og slabbi. Hann gæti verið hálfguð (14).

Högni virðist vera á skjön við bæði samfélagið og tímann en hann spyr aðalsögupersónuna hvort hún eigi afmæli og þótt hún svari neitandi óskar hann henni til hamingju. Þessi furðulegheit virðast þó spennandi í augum aðalsögupersónunnar sem laðast að Högna ekki síst vegna þess að hún finnur sig sjálf ekki í lífinu: „[mér] líður eins og ég sé föst í gamalli lyftu en átti mig ekki á því hvort hún sé kyrrstæð, eða á hreyfingu og engin leið til að vita í hvaða byggingu“ (22).

Latar konur sem nenna ekki lífinu

Síðasta sagan, „Dvergurinn með eyrað“, fjallar um unga stúlku sem er lágvaxin og með stanslaust suð fyrir eyranu. Fær hún því viðurnefnið Dvergurinn með eyrað og verður þar fyrir öðrun (e. othering). Jafnframt er hún „löt í beinan kvenlegg“ en formæður hennar „að minnsta kosti fjóra ættliði aftur“ hafa deilt þessari leti (89). Í samfélagi eins og á Íslandi „þar sem dugnaður og vinnusemi er æðst dyggða“ er slæmt að vera latur og eru þær því á skjön við samfélagið (89).[4] Konurnar eru einnig tímaferðalangar en Dvergurinn með eyrað kemst ekki að því fyrr en á unglingsárunum. Líkt og kemur fram í sögunni er flakk í tíma „blygðunarhegðun, eins og klósettferðir og kynlíf“ (91). Dvergurinn með eyrað byrjar þrátt fyrir þessa skömm að ferðast um í tíma, í fyrstu í tilraunaskyni en síðar til þess að flýja raunveruleikann. Að lokum eyðir hún meiri tíma á tímaferðalagi heldur en í sínu eigin lífi.

Líkt og framangreind umfjöllun sýnir eiga allar aðalsögupersónur smásagnanna þriggja það sameiginlegt að finna sig ekki í heiminum, hvort sem það er í tíma, rúmi eða samfélaginu í heild sinni. Þær leita því í eitthvað sem þær telja vera lausn á vandamálum sínum, hvort sem það er manneskja eins og Högni, í sápufugl eða tímaflakk. Einnig er vert að benda á að aðalsögupersónurnar eru allar nafnlausar og það undirstrikar öðrun þeirra að enginn ávarpar þær með nafni. Þó að titilsagan sé sú eina sem fjalli um eiginlegan hinseginleika í tengslum við kynhneigð þá fjalla hinar sögurnar tvær einnig um persónur sem eru á skjön og því má segja að hinseginleikinn umlykji sögurnar allar. Það sama má segja um tímann en hann gegnir stóru hlutverki í bókinni. Hann kemur meðal annars fram í aldursmuni aðalsögupersónunnar og Jóhönnu í titilsögunni, hinseginleika Högna og tímaflakki Dvergsins með eyrað. Höfundur hefur því ekki látið pressuna á sig fá og ákveðið að fjalla um stór og flókin mál í sinni annarri bók. Bókinni sem passar varla sjálf í sitt eigið hlutverk þar sem hún er svo smá.


[1] María Elísabet Bragadóttir, Sápufuglinn(Reykjavík: Una útgáfuhús, 2022). Eftirleiðis verður vísað í þessa bók með blaðsíðutali í sviga á eftir tilvísun.

[2] Hér mætti nota fallega orðið „ástvinur“ í nýrri merkingu.

[3] Julie Sondra Decker, The Invisible Orientation: An Introduction to Asexuality (Bandaríkin: Skyhorse, 2014), bls. 25. „…it is ‘queered‘ in some way—not friends, not romantic partners, but something else.”

[4] Júlía Aradóttir og Jórunn Sigurðardóttir, „Ímyndurnarafl er svo dularfullt fyrirbæri,“ RÚV.is 14. September, 2022, https://www.ruv.is/frett/2022/09/14/imyndunarafl-er-svo-dularfullt-fyrirbaeri.

content-1701

sabung ayam online

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

slot thailand

yakinjp

yakinjp

yakin jp

yakinjp id

maujp

maujp

maujp

maujp

sabung ayam online

sabung ayam online

judi bola online

sabung ayam online

judi bola online

slot mahjong ways

slot mahjong

sabung ayam online

judi bola

live casino

sabung ayam online

judi bola

live casino

SGP Pools

slot mahjong

sabung ayam online

slot mahjong

SLOT THAILAND

118000731

118000732

118000733

118000734

118000735

118000736

118000737

118000738

118000739

118000740

118000741

118000742

118000743

118000744

118000745

118000761

118000762

118000763

118000764

118000765

118000766

118000767

118000768

118000769

118000770

118000771

118000772

118000773

118000774

118000775

118000776

118000777

118000778

118000779

118000780

138000456

138000457

138000458

138000459

138000460

138000461

138000462

138000463

138000464

138000465

138000466

138000467

138000468

138000469

138000470

138000471

138000472

138000473

138000474

138000475

138000476

138000477

138000478

138000479

138000480

138000481

138000482

138000483

138000484

138000485

138000486

138000487

138000488

138000489

138000490

138000491

138000492

138000493

138000494

138000495

158000361

158000362

158000363

158000364

158000365

158000366

158000367

158000368

158000369

158000370

158000371

158000372

158000373

158000374

158000375

158000376

158000377

158000378

158000379

158000380

158000381

158000382

158000383

158000384

158000385

158000386

158000387

158000388

158000389

158000390

158000391

158000392

158000393

158000394

158000395

208000381

208000382

208000383

208000384

208000385

208000386

208000387

208000388

208000389

208000390

208000391

208000392

208000393

208000394

208000395

208000396

208000397

208000398

208000399

208000400

208000401

208000402

208000403

208000404

208000405

208000406

208000407

208000408

208000409

208000410

208000411

208000412

208000413

208000414

208000415

208000416

208000417

208000418

208000419

208000420

228000136

228000137

228000138

228000139

228000140

228000141

228000142

228000143

228000144

228000145

228000146

228000147

228000148

228000149

228000150

228000151

228000152

228000153

228000154

228000155

228000156

228000157

228000158

228000159

228000160

228000161

228000162

228000163

228000164

228000165

228000166

228000167

228000168

228000169

228000170

228000171

228000172

228000173

228000174

228000175

228000176

228000177

228000178

228000179

228000180

228000181

228000182

228000183

228000184

228000185

228000186

228000187

228000188

228000189

228000190

228000191

228000192

228000193

228000194

228000195

228000196

228000197

228000198

228000199

228000200

228000201

228000202

228000203

228000204

228000205

228000206

228000207

228000208

228000209

228000210

228000211

228000212

228000213

228000214

228000215

228000216

228000217

228000218

228000219

228000220

228000221

228000222

228000223

228000224

228000225

228000226

228000227

228000228

228000229

228000230

228000231

228000232

228000233

228000234

228000235

238000230

238000231

238000232

238000233

238000234

238000235

238000236

238000237

238000238

238000239

238000240

238000237

238000238

238000239

238000240

238000241

238000242

238000243

238000244

238000245

238000246

238000247

238000248

238000249

238000250

238000251

238000252

238000253

238000254

238000255

238000256

content-1701