Hvað með börnin? Um trans persónur í íslenskum barnabókum

Unnur Steina K. Karls, meistaranemi í almennri bókmenntafræði, skrifar um trans persónur í íslenskum barnabókum.

Ég hef alltaf haft gaman af bókum og lesið mikið. Þetta áhugamál byrjaði snemma í barnæsku – í raun áður en ég man eftir mér – og hefur eflst með tímanum. Hingað til hef ég þó ekki getað komið auga á eina einustu trans persónu í barnabókum. Þetta breyttist nýlega eftir að ég ákvað að reyna að lesa allar íslenskar skáldsögur þar sem trans persónur koma við sögu en þessi pistill er sá fyrsti af þremur sem fjalla um það ævintýri. Það kom mér mjög á óvart að af þeim 20 bókum sem ég las fyrir þetta verkefni var rúmlega þriðjungur barnabækur og þær komu allar út á síðastliðnum þremur árum eða þar um bil.

„Stelpa sem fæddist óvart í strákalíkama“[1]

Hlutverk trans persóna í íslenskum barnabókum eru mismunandi. Í Herra Bóbó, Amelía og ættbrókin (2020) eftir Yrsu Sigurðardóttur og Drengurinn með ljáinn (2022) eftir Ævar Benediktsson eru hlutverkin smá. Í bók Yrsu er það Lovísa, vinkona eiganda Herra Bóbós, sem er trans en í bók Ævars er Pó, bekkjarsystkini aðalsögupersónunnar, kynsegin og notar fornafnið hán. Báðar persónur leika aukahlutverk í sögunum og transleiki þeirra er því ekki mikið til umfjöllunar. Þær eru engu að síður mikilvægar birtingarmyndir sem vinna að því að normalísera (e. normalise) tilveru trans persóna í barnabókmenntum.

Trans persónan í bókunum Hingað og ekki lengra! (2020) og Nú er nóg komið! (2021) eftir Hildi Knútsdóttur og Þórdísi Gísladóttur leikur stærra hlutverk. Geirlaug, ein af þremur vinkonum í vinkonuhóp aðalpersónunnar, hefur nýlega komið út sem trans líkt og útskýrt er í fyrri bókinni:

Geirlaug hefur ekki alltaf heitið Geirlaug, nafnið tók hún bara upp í júní, öll hin árin í lífi sínu, alveg fram að þessu, hefur hún nefnilega heitið Geir.[2]

Þó að Geirlaug sé ekki í brennidepli fá lesendur að skyggnast inn í líf hennar í gegnum aðalpersónuna. Í fyrri bókinni er sagt frá því hvernig hún kemur út úr skápnum fyrir skólafélögum sínum og í seinni bókinni, sem gerist nokkrum mánuðum síðar, fá lesendur að vita að Geirlaug er byrjuð að taka hormónablokkera.

„Einhverjir flissuðu, aðrir bentu“[3]

Skólaslit 2: Dauð viðvörun (2022)[4] eftir Ævar Þór Benediktsson og Bella gella krossari (2023) eftir Gunnar Helgason eru mjög ólíkar bækur en eiga það sameiginlegt að fjalla um trans börn og fordóma. Í bók Ævars kynnast lesendur Ragnari, trans dreng á unglingsaldri. Rifjað er upp þegar Ragnar kom út úr skápnum en þá varð hann fyrir fordómum og einelti bæði í skólanum og í gegnum samfélagsmiðla þar sem hann fékk send ljót skilaboð og hótanir. Foreldrar hans og skólinn gátu lítið gert til að hjálpa og það eina sem Ragnar gat gert var að hundsa skilaboðin. Það sem hjálpaði honum mest var að hann kynntist öðrum trans og hinsegin krökkum utan skólans og eignaðist þar nýja vini. Í hópi annarra trans og hinsegin barna getur Ragnar verið hann sjálfur án allra fordóma.

Persónurnar í Bellu gellu krossara berjast á virkari hátt gegn fordómum en þar eru aðstæður einnig aðrar. Stella, aðalpersóna bókarinnar, er sís og litar hárið á sér blátt og fær sér hring í nefið snemma í bókinni. Þegar hún fer næst út úr húsi gelta þrír strákar á hana, hlæja að henni og kalla hana trönsu. Stella skilur ekkert í fyrstu en eftir fleiri álíka atvik með sömu strákum áttar hún sig á aðstæðum og leitar aðstoðar hjá Vanessu, vinkonu sinni sem er trans. Vanessa útskýrir að strákarnir hafi líklega lært að gelta af TikTok og markmiðið sé að meiða og særa. Hún segir að þetta sé alvarlegt mál sem geti þróast út í ofbeldi sé það ekki stöðvað. Vanessa og vinir hennar hafa lent í því að vera áreitt á þennan hátt og orðið fyrir líkamlegu ofbeldi. Einnig þekkir hún krakka sem þora ekki út úr húsi vegna ótta við áreiti og jafnframt segir hún fullt af trans krökkum í heiminum hafa framið sjálfsmorð vegna svona ofbeldis.

Það að Stella sé sís sannar hversu órökréttir fordómar strákanna eru. Þeir eru eingöngu að dæma hana eftir útliti og þeim fyrirframákveðnu hugmyndum sem þeir hafa um trans fólk sem eru auðsjáanlega ekki réttar. Þrátt fyrir að vera ekki trans sjálf áttar Stella sig á því að þetta sé alvarlegt mál sem byggir á hugmyndum sem særa trans fólk. Hún og vinir hennar ákveða því að taka höndum saman, taka strákana upp á myndband og ræða við foreldra þeirra. Áherslan er ekki á að þetta sé eina rétta lausnin – þó að hún virki að mestu leyti – heldur er aðalmálið að krakkarnir létu ekki kyrrt liggja heldur stóðu saman gegn óréttlæti.

„Þegar hún var minni hét hún Lárus“[5]

Breytingar á nöfnum eru áberandi hjá trans sögupersónum og oft er útskýrt að persóna sé trans með því að segja að hún hafi heitið öðru nafni áður en heiti nýju nafni núna. Sem dæmi má sjá þetta hjá fyrrnefndum Lovísu og Geirlaugu sem hétu einu sinni Lárus og Geir. Þetta er mjög einföld útskýring sem nær að sjálfsögðu ekki að lýsa margbreyttum veruleika trans fólks. Í raun mætti gagnrýna þessa nálgun þar sem fyrra nafn eða dauða nafn (e. deadname) einstaklings kemur engum við og getur jafnvel valdið vanlíðan. Einnig er það ekki algilt að trans fólk breyti nafninu sínu.

Það að vera trans er þó útskýrt frekar í flestum bókunum og má þar áætla að höfundar búist ekki endilega við því að öll börn viti hvað það felur í sér. Þetta er alla jafna útskýrt á mjög einfaldan hátt — „stelpa sem fæddist óvart í strákalíkama“[6] eða „stelp[a] sem allir héldu að hefði fæðst sem strákur“[7] svo dæmi séu nefnd. Orðræðan er mismunandi í hverri bók fyrir sig en alla jafna virðast höfundar reyna að nálgast umfjöllunarefnið af alúð. Vonandi halda íslenskir barnabókahöfundar því áfram en það er mikilvægt að börn lesi um fjölbreytileika og þá sérstaklega að trans börn geti séð sig í þeim bókum sem þau lesa. Að minnsta kosti er það eitthvað sem ég hefði viljað getað upplifað sem barn.

Unnur Steina K. Karls, meistaranemi í almennri bókmenntafræði.


[1] Hildur Knútsdóttir og Þórdís Gísladóttir. Hingað og ekki lengra! Reykjavík: JPV, 2020.

[2] Sama heimild.

[3] Ævar Þór Benediktsson. Skólaslit 2: Dauð viðvörun. https://www.skolaslit.is/sagan.

[4] Bókin kom út á netinu haustið 2022 og kemur út á prenti haustið 2023.

[5] Yrsa Sigurðardóttir. Herra Bóbó, Amelía og ættbrókin. Reykjavík: Bjartur, 2020.

[6] Hildur Knútsdóttir og Þórdís Gísladóttir. Hingað og ekki lengra! Reykjavík: JPV, 2020.

[7] Gunnar Helgason. Bella gella krossari. Reykjavík: Forlagið, 2023.

content-1701

sabung ayam online

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

slot thailand

yakinjp

yakinjp

yakin jp

yakinjp id

maujp

maujp

maujp

maujp

sabung ayam online

sabung ayam online

judi bola online

sabung ayam online

judi bola online

slot mahjong ways

slot mahjong

sabung ayam online

judi bola

live casino

sabung ayam online

judi bola

live casino

SGP Pools

slot mahjong

sabung ayam online

slot mahjong

SLOT THAILAND

118000731

118000732

118000733

118000734

118000735

118000736

118000737

118000738

118000739

118000740

118000741

118000742

118000743

118000744

118000745

118000761

118000762

118000763

118000764

118000765

118000766

118000767

118000768

118000769

118000770

118000771

118000772

118000773

118000774

118000775

118000776

118000777

118000778

118000779

118000780

138000456

138000457

138000458

138000459

138000460

138000461

138000462

138000463

138000464

138000465

138000466

138000467

138000468

138000469

138000470

138000471

138000472

138000473

138000474

138000475

138000476

138000477

138000478

138000479

138000480

138000481

138000482

138000483

138000484

138000485

138000486

138000487

138000488

138000489

138000490

138000491

138000492

138000493

138000494

138000495

158000361

158000362

158000363

158000364

158000365

158000366

158000367

158000368

158000369

158000370

158000371

158000372

158000373

158000374

158000375

158000376

158000377

158000378

158000379

158000380

158000381

158000382

158000383

158000384

158000385

158000386

158000387

158000388

158000389

158000390

158000391

158000392

158000393

158000394

158000395

208000381

208000382

208000383

208000384

208000385

208000386

208000387

208000388

208000389

208000390

208000391

208000392

208000393

208000394

208000395

208000396

208000397

208000398

208000399

208000400

208000401

208000402

208000403

208000404

208000405

208000406

208000407

208000408

208000409

208000410

208000411

208000412

208000413

208000414

208000415

208000416

208000417

208000418

208000419

208000420

228000136

228000137

228000138

228000139

228000140

228000141

228000142

228000143

228000144

228000145

228000146

228000147

228000148

228000149

228000150

228000151

228000152

228000153

228000154

228000155

228000156

228000157

228000158

228000159

228000160

228000161

228000162

228000163

228000164

228000165

228000166

228000167

228000168

228000169

228000170

228000171

228000172

228000173

228000174

228000175

228000176

228000177

228000178

228000179

228000180

228000181

228000182

228000183

228000184

228000185

228000186

228000187

228000188

228000189

228000190

228000191

228000192

228000193

228000194

228000195

228000196

228000197

228000198

228000199

228000200

228000201

228000202

228000203

228000204

228000205

228000206

228000207

228000208

228000209

228000210

228000211

228000212

228000213

228000214

228000215

228000216

228000217

228000218

228000219

228000220

228000221

228000222

228000223

228000224

228000225

228000226

228000227

228000228

228000229

228000230

228000231

228000232

228000233

228000234

228000235

238000230

238000231

238000232

238000233

238000234

238000235

238000236

238000237

238000238

238000239

238000240

238000237

238000238

238000239

238000240

238000241

238000242

238000243

238000244

238000245

238000246

238000247

238000248

238000249

238000250

238000251

238000252

238000253

238000254

238000255

238000256

content-1701