Af hákörlum, karlmennsku og kærleik. Um ljóðabókina Menn sem elska menn eftir Hauk Ingvarsson

Unnur Steina K. Karls er meistaranemi í almennri bókmenntafræði við Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands

 Þó að hið þekkta orðatiltæki segi að ekki eigi að dæma bækur af kápunni er kápan, og titillinn þar á, það fyrsta sem mögulegir lesendur sjá. Því verða þessi atriði að vera bæði lýsandi fyrir innihald bókarinnar jafnt sem grípandi til þess að fá fólk til þess að opna bókina og lesa. Þriðju ljóðabók Hauks Ingvarssonar, fræðimanns og skálds, tókst þetta vel en bókin kom út í jólabókaflóðinu árið 2021 og vakti þá umtalsverða athygli vegna titilsins, Menn sem elska menn. Ef til vill koma ákveðnar hugmyndir upp í huga lesenda þegar sá titill er lesinn, mögulega hugmyndir tengdar hinseginleika. Þennan undirliggjandi hinseginleika bókarinnar má jafnframt greina á kápunni en myndin á forsíðunni er landslagsmynd á hvolfi. Þar eru hafið og fjöllin efst á síðunni en himinninn fyrir neðan. Þegar bókin er lesin er því veröldin á hvolfi, hún snýr hinsegin. Ef myndinni á kápunni er hins vegar snúið rétt fer bókin öll á hvolf og er ólæsileg. Lesendur verða því að samþykkja að snúa veröldinni á haus við lestur ljóðanna.

Karlmennska og kærleikur

Bókin samanstendur af þremur bálkum sem bera heitin „Laumufarþegar“, „Menn sem elska menn“ og „Úr höfði himinn“. Hér verða síðari bálkarnir tveir aðallega til skoðunar, sérstaklega sá sem ber sama titil og bókin, en hann fjallar um vináttu og ást á milli karlmanna ásamt því að beina sjónum að hugmyndum um karlmennsku. Þriðji og síðasti bálkurinn, „Úr höfði himinn“, er á fremur persónulegum nótum en hann fjallar aðallega um tímann og barnæskuna. Þar eru umfjöllunarefnin einnig kalt stríð, goðafræði, himingeimurinn og kærleikurinn, sem er alltumlykjandi í bókinni. Höfundur sagði sjálfur í viðtali rétt eftir útgáfu bókarinnar að kærleikur hafi meðal annars verið honum hugleikinn:

„Þannig séð var kærleikurinn eitthvað sem ég vildi boða með þessari bók, kærleikur og fegurð […] þessi karlmennskuhugmynd sem er verið að afneita núna og deila á, hún er ekki endilega fasti. Við getum breytt henni.“[1]

Kærleiksboðskapur bókarinnar er nátengdur hugmyndum um karlmennsku og með því að leggja áherslu á og boða ást og kærleik, þá sérstaklega milli karlmanna, eru þar settar fram nýjar hugmyndir um karlmennsku sem eru bein ádeila á þær ríkjandi hugmyndir sem nú eru uppi. Hugmyndir um eitraða eða skaðlega karlmennsku þar sem karlmenn eru tilfinningalega fjarlægir og svo framvegis eru hér reknar á brott og þess í stað er ást, af hvaða toga sem er, milli karlmanna upphafin.

Einmana hákarlar

Slíka ádeilu á karlmennskuhugmyndir má til dæmis sjá í ljóðunum um grænlandshákarlinn í ljóðabálknum „Menn sem elska menn“. Grænlandshákarlinn, sem lifir djúpt í Norður-Íshafi, er stórt og mikið rándýr sem getur lifað í nokkur hundruð ár og má auðveldlega tengja við karllægar hugmyndir um líkamlegan styrk, vald og árásarhneigð. Hins vegar eru ljóðin um hákarlinn í bók Hauks öll á fremur ljúfsárum nótum þar sem áhersla er lögð á þá einsemd sem hákarlinn finnur fyrir aleinn, djúpt í iðrum hafsins, þar sem hann syndir í mörg hundruð ár með ást í hjarta:

v.

það hafa fleiri ort
um Grænlandshákarlinn

og hið undarlega tundur
þegar lýsi hans brennur

í 150 ár
bíður hann kynþroskans

og svo kviknar kalt bál
leiftur um nótt

kannastu við annarra manna orð
sem bærast innra með
þér

án þess
að þú getir
kallað þau fram
á tunguna?

[…][2]

 

xii.

Grænlandshákarlinn
hvítur og stór

leiddi ekki hugann
að byltingunum fjórum
en hann horfði með glóð
í auga

á iðandi kroppa á sundi

hann elskaði menn
sem elskuðu menn
sem elskuðu að elska menn

og þar sem þeir ólmuðust
á sundi

þá dreymdi hann um
að læsa í þá tönnum

sjá rautt blóðið
breiðast um blátt hafið

[…][3]

 

Grænlandshákarlinn upplifir einmanaleika sem fylgir hinni skaðlegu karlmennsku og bælingu tilfinninga, þá sérstaklega ástar og kærleiks. Þessi skilaboð, um að einblína eigi á kærleikann, koma einnig sérstaklega skýrt fram í tíunda ljóði síðasta ljóðabálksins:

x.

kærleikurinn er
þyngdarkraftur
alheimsins

hann leggur bönd
á efnin
heldur sólum
á brautu

togar barn að móður
mann að konu
mann að manni
konu að konu
fólk að fólki

silkiræma var gjörð
með list og vél

úlfur bundinn

og
æ síðan
hafa sameindir
skilið okkur að

tilbrigði
í okkar sameiginlegu
erfðakeðjum

náttúran beisluð

kærleiksverk
og svo hlógu goðin
öll nema eitt

elskaði
Loki börn sín
svo mjög
að hann fórnaði
þeim
ekki?

faðir
elskaðu barn þitt
yfirgefðu það ekki[4]

Kærleiksboðskapurinn skín hér í gegn og mikil áhersla lögð á ást. Áhugavert er að móðurástin er nefnd fyrst, síðan gagnkynhneigð ást, fylgt á eftir með samkynja ást, fyrst karla og síðan kvenna, og að lokum ást milli fólks almennt. Ýmislegt má lesa út úr því en svo virðist sem höfundur leitist við að vera inngildandi (e. inclusive) og fjalla um eins fjölbreytta ást og hægt er. Í lok ljóðsins er áherslan þó lögð á föðurástina þar sem Loki er þar fyrst nefndur á nafn og hinseginleiki hans ítrekaður þar sem hann, ólíkt hinum kristna guði, elskar börnin sín svo mikið að hann fórnar þeim ekki. Að lokum er ónefndur faðir ákallaður en hann má bæði túlka sem vísun í hinn fyrrnefnda kristna guð og feður almennt. Kallað er eftir því að karlmenn falli ekki í gildru hinnar skaðlegu karlmennsku og tjái þess í stað ást sína, þá sérstaklega í garð barna sinna.

Karlmenn og ást

Annar ljóðabálkurinn, „Menn sem elska menn“, fjallar líkt og titillinn ber til kynna um menn sem elska (eða elskuðu) menn. Meðal annars er viðfangsefnið Fjölnismennirnir Jónas Hallgrímsson og Tómas Sæmundsson og vinátta þeirra en þeir voru mjög nánir vinir líkt og sjá má á bréfaskiptum þeirra.[5] Ljóðmælandi vitnar ítrekað í þessi bréf og bendir sérstaklega á þá ást sem ríkti á milli þeirra félaga:

i.

manstu eftir bréfinu
frá Tómasi til
Jónasar?

þar sem hann segist vera
hálf melankólskur

en bætir við að þeir megi
aldrei gleyma hvor öðrum

talar um fjarlægðina
milli þeirra og þunga
kroppsins

talar um stefnumót
í andanum
yfir höf
og lönd

kosmískar víddir


þeir
geti

flogið upp í Júpiter
eður Úranus

og
áður en hann kveður
kallar hann
Jónas
elskuna sína
segir
ég er þinn

manstu eftir þessu bréfi?[6]

Skrif Tómasar til Jónasar sem hér er vitnað orðrétt í eru yfirfull af innilegum ástarjátningum en færa má rök fyrir því að samband þeirra hafi verið svokölluð rómantísk vinátta. Rómantísk vinátta einkennist af mjög nánum tilfinningasamböndum milli vina, oftast af sama kyni, og var meðal annars algeng á 19. öld þegar þeir félagar voru uppi.[7] Þrátt fyrir að hægt sé að líta á þessi sambönd sem hinsegin í nútímaskilningi voru þau yfirleitt ekki álitin sérkennileg á sínum tíma. Mögulegt er að túlka ljóðin um Tómas og Jónas svo að hér sé verið að benda á hinseginleika sambands þeirra og að með titlinum Menn sem elska menn sé meðal annars vísað til þeirra. Einnig boða þessi ljóð mikilvægi ástar og kærleiks milli karlmanna í dag með því að benda á heimildir sem sýna og upphefja ást karlmanna til vina sinna. Það gerir eftirfarandi ljóð um kappana úr Brennu-Njáls sögu einnig:

xiv.

og þú elskar Gissur
og þú elskar Geir
sem elskar Gunnar
sem elskar Héðin og

Njál

sem elskar menn
sem elskar menn
menn
menn
menn[8]

Hér gefst einnig tækifæri til hinsegin túlkunar á persónum ljóðsins og samböndum þeirra, þá sérstaklega sambandi Gunnars og Njáls, en vinátta þeirra er lituð af nánum tilfinningaböndum og mögulegum hinsegin undirtónum líkt og ýmsir fræðimenn hafa áður bent á.[9] Einnig er ljóðið í eðli sínu frábrugðið hefðbundinni orðræðu þar sem í því er fjallað um þekktar karlpersónur úr Íslendingasögum ekki sem hetjur og bardagakappa heldur sem karlmenn sem elska og þá sérstaklega aðra karlmenn. Ljóðmælandi beinir því aftur sjónum frá hinni ofbeldisfullu karlmennsku og að ást og kærleik líkt og gert er í bókinni allri. Það er þessi kærleikur, þá sérstaklega tengdur mönnum sem elska menn, og ádeila á ríkjandi hugmyndir um karlmennsku sem gera bók Hauks að þeirri fallegu hinsegin ljóðabók sem hún er.

Unnur Steina K. Karls er meistaranemi í almennri bókmenntafræði við Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands.


[1] Jórunn Sigurðardóttir, „Kærleikur var eitthvað sem mig langaði til að boða,“ RÚV.is, 13. október 2021.

[2] Haukur Ingvarsson, Menn sem elska menn (Reykjavík: Mál og menning, 2021), 29.

[3] Sama heimild, 39.

[4] Sama heimild, 62–63.

[5] Hér má sem dæmi benda á grein Steinunnar Haraldsdóttur „„Ég má með engu móti missa þig“: Vinátta Tómasar Sæmundssonar og Jónasar Hallgrímssonar eins og hún birtist í bréfum þeirra“ sem birtist í Vefni árið 2007.

[6] Haukur Ingvarsson, Menn sem elska menn, 23.

[7] E. Anthony Rotundo, “Romantic Friendship: Male Intimacy and Middle-Class Youth in the Northern United States, 1800-1900.” Journal of Social History 23, nr. 1 (1989): 1-2. http://www.jstor.org/stable/3787562.

[8] Haukur Ingvarsson, Menn sem elska menn, 42.

[9] Sem dæmi má hér nefna grein Ármanns Jakobssonar „Ekki kosta munur: Kynjasaga frá 13. öld“ sem birtist í Skírni vorið 2000 (https://timarit.is/gegnir/000503369) ásamt BA-ritgerðinni „Var Njáll hommi? Tilvísanir söguhöfundar Njálu til samkynhneigðar“ eftir Evu-Mariu Klumpp frá árinu 2015 og er aðgengileg á Skemmunni.

content-1701

sabung ayam online

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

slot thailand

yakinjp

yakinjp

yakin jp

yakinjp id

maujp

maujp

maujp

maujp

sabung ayam online

sabung ayam online

judi bola online

sabung ayam online

judi bola online

slot mahjong ways

slot mahjong

sabung ayam online

judi bola

live casino

sabung ayam online

judi bola

live casino

SGP Pools

slot mahjong

sabung ayam online

slot mahjong

SLOT THAILAND

118000731

118000732

118000733

118000734

118000735

118000736

118000737

118000738

118000739

118000740

118000741

118000742

118000743

118000744

118000745

118000761

118000762

118000763

118000764

118000765

118000766

118000767

118000768

118000769

118000770

118000771

118000772

118000773

118000774

118000775

118000776

118000777

118000778

118000779

118000780

138000456

138000457

138000458

138000459

138000460

138000461

138000462

138000463

138000464

138000465

138000466

138000467

138000468

138000469

138000470

138000471

138000472

138000473

138000474

138000475

138000476

138000477

138000478

138000479

138000480

138000481

138000482

138000483

138000484

138000485

138000486

138000487

138000488

138000489

138000490

138000491

138000492

138000493

138000494

138000495

158000361

158000362

158000363

158000364

158000365

158000366

158000367

158000368

158000369

158000370

158000371

158000372

158000373

158000374

158000375

158000376

158000377

158000378

158000379

158000380

158000381

158000382

158000383

158000384

158000385

158000386

158000387

158000388

158000389

158000390

158000391

158000392

158000393

158000394

158000395

208000381

208000382

208000383

208000384

208000385

208000386

208000387

208000388

208000389

208000390

208000391

208000392

208000393

208000394

208000395

208000396

208000397

208000398

208000399

208000400

208000401

208000402

208000403

208000404

208000405

208000406

208000407

208000408

208000409

208000410

208000411

208000412

208000413

208000414

208000415

208000416

208000417

208000418

208000419

208000420

228000136

228000137

228000138

228000139

228000140

228000141

228000142

228000143

228000144

228000145

228000146

228000147

228000148

228000149

228000150

228000151

228000152

228000153

228000154

228000155

228000156

228000157

228000158

228000159

228000160

228000161

228000162

228000163

228000164

228000165

228000166

228000167

228000168

228000169

228000170

228000171

228000172

228000173

228000174

228000175

228000176

228000177

228000178

228000179

228000180

228000181

228000182

228000183

228000184

228000185

228000186

228000187

228000188

228000189

228000190

228000191

228000192

228000193

228000194

228000195

228000196

228000197

228000198

228000199

228000200

228000201

228000202

228000203

228000204

228000205

228000206

228000207

228000208

228000209

228000210

228000211

228000212

228000213

228000214

228000215

228000216

228000217

228000218

228000219

228000220

228000221

228000222

228000223

228000224

228000225

228000226

228000227

228000228

228000229

228000230

228000231

228000232

228000233

228000234

228000235

238000230

238000231

238000232

238000233

238000234

238000235

238000236

238000237

238000238

238000239

238000240

238000237

238000238

238000239

238000240

238000241

238000242

238000243

238000244

238000245

238000246

238000247

238000248

238000249

238000250

238000251

238000252

238000253

238000254

238000255

238000256

content-1701