Hinsegin heimsendir

Sunna Dís Jensdóttir, meistaranemi í almennri bókmenntafræði við Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands, fjallar um bókina Heimsendir, hormónar og svo framvegis eftir Rut Guðnadóttur.

Heimsendir, hormónar og svo framvegis
Rut Guðnadóttir
Forlagið, 2022

Segja má að rithöfundurinn Rut Guðnadóttir ráðist ekki á garðinn þar sem hann er lægstur. Aðeins tveimur árum eftir að fyrsta bók hennar var gefin út, verkinu Vampírur, vesen og annað tilfallandi sem hlaut Íslensku barnabókaverðlaunin árið 2020, lýkur hún nú hrollvekjandi þríleik. Í skáldsögunni Heimsendir, hormónar og svo framvegis fléttast saman þræðir sem komið hafa fyrir í fyrri bókunum tveimur og lesendur fá svör við ýmsum þeim spurningum sem áður hafa vaknað – ásamt því að þeir fá að kynnast aðalpersónunum, hinni þjökuðu Lilju, uppreisnargjörnu Rakel og reglusömu Millu, enn betur.

Vinkonurnar, sem voru að taka sín fyrstu skref í unglingadeild þegar lesendur kynntust þeim fyrst, ljúka nú senn grunnskóla. Menntaskólaárin bíða því handan við hornið og miðað við allt sem á undan er gengið hjá þessum vinahóp ættu þau ekki að virðast svo skelfileg, eða hvað? Ákvarðanir um framtíðina sækja á þær líkt og alla aðra unglinga sem standa á slíkum tímamótum og þá er kannski bara einfaldara að beina kröftum sínum að hinu yfirnáttúrulega, sem er einmitt það sem þær gera. Ýmsar kynjaverur og hindranir verða á vegi þeirra, líkt og áður, og leit þeirra að betri skilningi á umheiminum færir þeim um leið aukinn þroska og skilning á eigin lífi.

Fyrsta skáldsagan í þríleiknum hlaut einnig tilnefningu til Fjöruverðlaunanna, bókmenntaverðlauna kvenna á Íslandi.

Hinsegin fantasía

Líkt og áður sækir Rut til fantasíunnar og hikar ekki við að flétta saman hinum ýmsu bókmenntagreinum. Lesandinn flakkar um heima hrollvekjunnar, ævintýrisins og vísindaskáldskapar og textatengslin ná víða. Norræn goðafræði og múmínálfar koma við sögu ásamt víddarflakki sem er þekkt minni úr gáttar-leitar-fantasíum líkt og Kóralínu eftir Neil Gaiman. Rut er bókmenntafræðimenntuð og óhætt er að segja að hún vinni með þá þekkingu, en á sama tíma hikar hún ekki við að fara ótroðnar slóðir. Athygli hefur vakið að eitt af lykilþemum verkanna er hinseginleiki en slíkum stimpli er einmitt fagnað inni á fésbókarsíðu höfundar – sem ber hið skemmtilega nafn Ruthöfundur. Þar segir einnig að erfiðleikar sögupersóna byggi að hluta til á eigin reynslu höfundar og áréttar hún mikilvægi þess að hinsegin raddir og birtingarmyndir fái rými í hvers kyns miðlum.

Rut er óhrædd við að gera kynhneigð að umfjöllunarefni og dregur upp margbreytilega mynd af upplifun sögupersóna og viðbrögðum annarra. Lesendur fengu í fyrri bókunum að kynnast feluleik Rakelar og óvissu Lilju, ásamt blendnum tilfinningum Millu gagnvart ástarsambandi hinna tveggja. Í söguheiminum birtast einnig mismunandi fjölskyldueiningar, en Lilja býr til dæmis með mæðrum sínum tveimur. Í Heimsendir, hormónar og svo framvegis eru tilfinningar sögupersóna gagnvart hinseginleikanum orðnar stöðugri, þótt sjálfsmynd þeirra og staða innan samfélagsins sé enn til skoðunar. Það sem þessi lokakafli þríleiksins hefur hins vegar fram yfir hina er hvernig hinsegin textatengslum og myndlíkingum er gefið meira rými en áður, til að mynda með vísunum til hinsegin höfunda og annarleika persónanna á nýjum stað.

Önnur bókin í þríleik Rutar ber titilinn Drekar, drama og meira í þeim dúr og kom út fyrir jólin 2021.

Sjálfsmynd og svo framvegis

Þessi bók er tileinkuð öllum
óvissum unglingum.
Öryggið kemur að lokum,
haldið áfram.“(5)

Í fyrri bókunum var fjallað um innri skömm Rakelar og ótta hennar við höfnun, og óöryggi Lilju og tengingarleysi hennar við eigin tilfinningar. Þegar hér er komið við sögu hafa þær báðar viðurkennt kynhneigð sína en sjálfsmyndarhugtök reynast auðvitað engin lausn á öllum þeirra vanda. Jafnvel í þessum kynngimagnaða fantasíuheimi eru engar galdralausnir í lífinu.

Báðar persónurnar eru enn hræddar og reiðar við heiminn – eða „hreið[ar]“ (55), líkt og höfundur kemst svo skemmtilega að orði – þótt birtingarmyndir slíkra tilfinninga séu ólíkar þeirra í milli. Rakel veigrar sér við að taka ákvarðanir sem gætu falið í sér höfnun á meðan óöryggi Lilju sviptir hana bæði sjálfræði og sannfæringunni um eigið gildi. Þetta helst að sjálfsögðu í hendur við hina óræðu framtíð þeirra og Milla, sem veit hvað hún vill og getur í þessum efnum, hefur engan skilning á aðstæðum þeirra.

Að vissu leyti er þessi sameiginlegi ótti þeirra hluti af upplifun unglingsáranna, líkt og sést í óöryggi Millu, sem brýst út á sinn hátt, en hann á einnig rætur að rekja til þess að Rakel og Lilja eru hinsegin og því á skjön við það sem samfélagið gerir ráð fyrir. Höfundur beinir athygli að hinsegin upplifuninni almennt en tekst samt með vandaðri persónusköpun að sýna ólíkan reynsluheim stúlknanna. Nema má aukinn þroska í þessum skrifum, átök og gallar sögupersóna koma fram á yfirvegaðri hátt en í fyrri bókum, og aukinn sjálfskilningur þeirra hleypir lesandanum jafnvel enn nær en áður.

Tove Jansson og leitin að skilningi

„Ekki þreytast, aldrei missa áhugann, leyfðu þér ekki að standa á sama – glataðu ómetanlegri forvitni þinni og þú leyfir þér að deyja. Svo einfalt er það,“ segir Milla skyndilega. (74)

Lesendur fá að kynnast betur ýmsum aukapersónum sem eiga það sameiginlegt að þurfa að sigrast á eigin ótta. Ösp, systir Millu, þarf til að mynda að sýna af sér mikið hugrekki og sama má segja um vandræðalega stærðfræðikennarann Kjartan. Vitundarmiðja verksins fylgir honum í tveimur köflum og opinberast þar óöryggi hans, vilji og sigrar. Þá reynist einnig ómennsk en kunnugleg vera gegna veigamiklu hlutverki þegar uppi er staðið.

Hin undirgefna Agneta kemur aftur við sögu og djúpstæð aðdáun hennar á söguheimi finnska rithöfundarins og listamannsins Tove Jansson fær enn ríkari merkingu en áður. Hinseginleiki er nátengdur allri umfjöllun um höfundarverk Jansson og í skáldsögunni er sótt í slík textatengsl.

„Þetta er tilvitnun í eina af bókum Tove Jansson, reyndar ekki múmínsögu heldur fjallar hún um ástir tveggja kvenna, voðalega falleg bók,“ svarar Milla. (75)

Rithöfundurinn Tove Jansson ásamt múmínálfunum sem koma við sögu í Heimsendir, hormónar og svo framvegis.

Segja má að með þessu kinki Rut kolli til forvera síns sem meðal annarra ruddi veginn og hvatti síðari tíma höfunda til að fjalla frjálslega um hinseginleika í bókmenntum. Slík textatengsl ná einnig víðar því þekkingarleit og flakk sögupersóna Rutar minnir um margt á Ævintýri Lísu í Undralandi, sem margsinnis hefur verið túlkað sem ferðalag inn í eigið innra líf.

Á skjön við flest

Í fyrri verkunum þröngvaði hið yfirnáttúrulega sér inn í söguheim þeirra Rakelar, Millu og Lilju en í lokakafla þríleiksins má segja að málunum sé öfugt farið. Ótrúleg atburðarás veldur því að þær eru staddar í tilveru þar sem þær eiga ekki heima. Þar eru vinkonurnar óvelkomnar og grunaðar um græsku vegna uppruna þeirra og óþekkts eðlis. Að lokum eru þær innilokaðar og hundeltar en slíkar ofsóknir kallast óneitanlega á við raunveruleika hinsegin einstaklinga.

Hugleiðingar um trú og trúarbrögð má einnig finna í verkinu en Rakel á sérstaklega erfitt með að samþykkja hugmyndina um eitthvað æðra.

Rakel finnst ekki gaman að tala um trúmál, að hennar mati höfðu trúarbrögð í mannheimum að minnsta kosti ekki leitt af sér neitt annað en sársauka, hatur og kúgun. Það var til fólk í heiminum í dag sem hataði Rakel því það hélt því fram að skapari heimsins, sem bjó uppi í skýjunum, yrði voða voða reiður ef hún kyssti aðra stelpu. Meira bullið. (157)

Þetta vantraust Rakelar gagnvart trúarkerfum endurspeglar ótta hennar við skilgreiningarvald annarra og innbyggða samfélagslega skömm, sem endurómar vanda hennar og Lilju á ýmsa vegu. Með þessu fléttar höfundur því á fínlegan hátt inn í verkið hvað staða hinsegin einstaklinga felur í sér og leggur um leið áherslu á skaðsemi fordóma og áhrif þeirra.

Aldur og ævintýri

Þær Lilja, Rakel og Milla eru sannfærandi persónur sem auðvelt er að láta sér þykja vænt um. Verkið kveikir kátínu og samhug óháð aldri lesenda, enda vekja lýsingar af raunum unglingsáranna eflaust upp ýmiss konar hugrenningartengsl. Greina má aukið traust höfundar til eigin skáldskapar, á sama tíma og textatengsl og vísanir dýpka merkingarheim frásagnarinnar. Tekist er á við mikilvæg samtímamálefni er varða hinseginleika og fordóma og rýnt í sjálfsmynd einstaklingsins og hugrekki hans. Meiri hraði og spenna ræður ríkjum en í fyrri bókum, þótt tilfinningaleg innsýn og skarpur húmor sé hvergi langt undan. Heimsendir, hormónar og svo framvegis býður upp á flækjur og lausnir, ævintýralegar uppákomur og mannlegan skilning, sem auðvelt er að mæla með!

Sunna Dís Jensdóttir, meistaranemi í almennri bókmenntafræði við Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands.

 

content-1701

sabung ayam online

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

slot thailand

yakinjp

yakinjp

yakin jp

yakinjp id

maujp

maujp

maujp

maujp

sabung ayam online

sabung ayam online

judi bola online

sabung ayam online

judi bola online

slot mahjong ways

slot mahjong

sabung ayam online

judi bola

live casino

sabung ayam online

judi bola

live casino

SGP Pools

slot mahjong

sabung ayam online

slot mahjong

SLOT THAILAND

118000731

118000732

118000733

118000734

118000735

118000736

118000737

118000738

118000739

118000740

118000741

118000742

118000743

118000744

118000745

118000761

118000762

118000763

118000764

118000765

118000766

118000767

118000768

118000769

118000770

118000771

118000772

118000773

118000774

118000775

118000776

118000777

118000778

118000779

118000780

138000456

138000457

138000458

138000459

138000460

138000461

138000462

138000463

138000464

138000465

138000466

138000467

138000468

138000469

138000470

138000471

138000472

138000473

138000474

138000475

138000476

138000477

138000478

138000479

138000480

138000481

138000482

138000483

138000484

138000485

138000486

138000487

138000488

138000489

138000490

138000491

138000492

138000493

138000494

138000495

158000361

158000362

158000363

158000364

158000365

158000366

158000367

158000368

158000369

158000370

158000371

158000372

158000373

158000374

158000375

158000376

158000377

158000378

158000379

158000380

158000381

158000382

158000383

158000384

158000385

158000386

158000387

158000388

158000389

158000390

158000391

158000392

158000393

158000394

158000395

208000381

208000382

208000383

208000384

208000385

208000386

208000387

208000388

208000389

208000390

208000391

208000392

208000393

208000394

208000395

208000396

208000397

208000398

208000399

208000400

208000401

208000402

208000403

208000404

208000405

208000406

208000407

208000408

208000409

208000410

208000411

208000412

208000413

208000414

208000415

208000416

208000417

208000418

208000419

208000420

228000136

228000137

228000138

228000139

228000140

228000141

228000142

228000143

228000144

228000145

228000146

228000147

228000148

228000149

228000150

228000151

228000152

228000153

228000154

228000155

228000156

228000157

228000158

228000159

228000160

228000161

228000162

228000163

228000164

228000165

228000166

228000167

228000168

228000169

228000170

228000171

228000172

228000173

228000174

228000175

228000176

228000177

228000178

228000179

228000180

228000181

228000182

228000183

228000184

228000185

228000186

228000187

228000188

228000189

228000190

228000191

228000192

228000193

228000194

228000195

228000196

228000197

228000198

228000199

228000200

228000201

228000202

228000203

228000204

228000205

228000206

228000207

228000208

228000209

228000210

228000211

228000212

228000213

228000214

228000215

228000216

228000217

228000218

228000219

228000220

228000221

228000222

228000223

228000224

228000225

228000226

228000227

228000228

228000229

228000230

228000231

228000232

228000233

228000234

228000235

238000230

238000231

238000232

238000233

238000234

238000235

238000236

238000237

238000238

238000239

238000240

238000237

238000238

238000239

238000240

238000241

238000242

238000243

238000244

238000245

238000246

238000247

238000248

238000249

238000250

238000251

238000252

238000253

238000254

238000255

238000256

content-1701