Hið óþekkta og óvæga

Rut Thorlacius Guðnadóttir hefur á undanförnum árum gefið út ungmennaskáldsögur um vinkonurnar Lilju, Rakel og Millu og ævintýri þeirra. Hennar fyrsta verk Vampírur, vesen og annað tilfallandi tryggði henni bæði Íslensku barnabókaverðlaunin og tilnefningu til Fjöruverðlaunanna árið 2020. Sjálfstæða framhaldið Drekar, drama og meira í þeim dúr kom svo út ári síðar og með nýjasta verkinu Heimsendir, hormónar og svo framvegis sem kom út fyrir jólin er hennar fyrsta þríleik nú lokið. Athygli hefur vakið að hinseginleiki er eitt af meginþemum verkanna, þar sem kynhneigð, fjölbreytileiki og sjálfsmynd fær mikið rými. Af því tilefni sá Kynvillta bókmenntahornið sér leik á borði að ná tali af höfundinum. Einn eftirmiðdag lagði Ruthöfundurinn því leið sína til okkar inn á rökkvaðan Stúdentakjallarann – pilsum vafin, eyeliner á sínum stað, skjalataska við hönd.

Sunna Dís Jensdóttir, meistaranemi í almennri bókmenntafræði, ræðir við rithöfundinn Rut Thorlacius Guðnadóttur.

Ofgnótt af yndislegum tækifærum

Aðeins eru rúmlega tvö ár síðan Rut gaf út sína fyrstu skáldsögu og því var ekki annað hægt en að byrja viðtalið á því að spyrja hvernig lífið hefði leikið hana að undanförnu. Hún segir „ofgnótt af yndislegum tækifærum“ hafa einkennt síðustu ár en frá því að hún varð fyrst útgefinn höfundur hjá Forlaginu hefur hún sömuleiðis öðlast kennsluréttindi og hafið störf sem íslenskukennari við Verzlunarskóla Íslands.

Áður hafði Rut lokið námi meðal annars í sálfræði og ritlist en aðalpersónurnar, sem lesendur hafa fengið að kynnast í verkum hennar þremur, urðu einmitt til sem ritlistarverkefni í persónusköpun. Í framhaldi af því vaknaði áhugi hennar á því að sjá þær Lilju, Rakel og Millu takast á við eitthvað óhefðbundið eða yfirnáttúrulegt og það hefur henni svo sannarlega tekist að gera að (skáld)veruleika. Sögupersónurnar sótti hún ekki langt því upphaflega byggði hún þær á eigin reynslu og karakter en þó á ólíka vegu:

Það er eins og ég hafi tekið persónuleika minn og sundrað honum í sínar frumeindir og búið til endurspeglun af þessum hliðum hans.

Vinkonurnar þrjár öðluðust þó fljótlega sjálfstætt líf og Rut þurfti stundum að taka nokkur skref aftur á bak í skrifunum þegar þau samræmdust ekki lundarfari og hátterni persónanna. Hún segir að í þó nokkur skipti hafi hún staðið sig að því að hugsa til dæmis: „Nei, þetta er miklu frekar eitthvað sem Rakel myndi gera!“ Rut lætur sjónarhornið gjarnan flakka milli persóna sem gerir það að verkum að lesendur fá að kynnast mismunandi tilfinningum og viðbrögðum þeirra sem skapar bæði nánd og kunnugleika gagnvart persónunum. Þá vildi Rut einnig sýna hvernig fólk getur túlkað sömu aðstæður á ólíka vegu sérstaklega vegna þess að bækurnar eru ætlaðar ungu fólki. Á þeim árum sé gjarnan minna rými fyrir margvíslega afstöðu til sömu hluta en síðar á ævinni og það sjónarmið ríkjandi að annað hvort séu hlutirnir „svona eða hinsegin.“

Í leðurjakka gagnvart kulda heimsins

Innri átök sögupersóna eru áberandi umfjöllunarefni í verkum Rutar þar sem varpað er ljósi á óöryggi einstaklingsins og brotna sjálfsmynd hans. Birtingarmyndir slíkra átaka geta verið margvíslegar, í raunheimum líkt og hinum skáldaða, eins og Rut kemur inn á:

Við getum verið með svakalega fullkomnunaráráttu þar sem við verðum að vera best í einhverju, eins og Milla gerir. Við getum gert persónuleikann okkar að gaddavír og verið í leðurjakka gagnvart kulda heimsins, sem er það sem Rakel gerir. Eða við verðum ofboðslega efins og eiginlega frjósum, þorum ekki að segja eða gera það sem við viljum því við óttumst viðbrögð annarra, sem Lilja gerir. Allt á þetta rætur í þeirri hugsun að „ég er ekki nóg eins og ég er“, sem ég held að allir tengi við.

Af þessum orðum má sjá að Rut tekur hinn mannlega efa gagnvart eigin ágæti til skoðunar í skáldsagnaskrifunum og reynir að miðla þeirri staðreynd að slíkar hugsanir sæki á alla, hvort sem þeir eru á unglings- eða fullorðinsaldri. Það má til að mynda sjá í mörgum af þeim fullorðnu sögupersónum sem koma fyrir í þríleiknum og er nærtækast að minnast á stærðfræðikennarann Kjartan – sem er svo feiminn og hræddur við lífið að hann forðast sjálft sólarljósið. Rut ber afar hlýjar tilfinningar til persónunnar og segir hann alls ekki gripinn úr lausu lofti því í gegnum hann fái hún útrás fyrir að gera grín að sjálfri sér. Ýmis karaktereinkenni hans, líkt og hinn skrautlegi klæðaburður, eru fengin að láni úr nærumhverfinu og minnist Rut sérstaklega á neonlituðu sjósundshúfuna sem Kjartan þrjóskast við að ganga með – en eina slíka á hún einmitt sjálf.

Ég elska Kjartan svo mikið, hann er svo mikill lúði!

Rut segir að hún reyni alltaf að vera húmorísk í skrifunum sem geti leitt af sér frábærar athugasemdir frá ritstjóra eins og þessa: „Hví er þér svona tíðrætt um hundakúk?“

Talað undir rós

Í skáldsögum Rutar kennir ýmissa grasa og þótt jafnan sé stutt í húmorinn og innra sálarlífið teygja þær sig einnig inn á svið fantasíubókmennta og hrollvekja. Rut segist alla tíð hafa heillast af hinu yfirnáttúrulega og dulræna og að áhuginn hafi smitast yfir á fleiri svið lífsins.

Ég er sjálf afskaplega goth manneskja, fer ekki út úr húsi nema vera með þrjú lög af svörtum eyeliner. Mér finnst það tengjast svolítið inn í þetta, sérstaklega kannski hugmyndinni um vampíruna. Hún sem goðsagnavera er ofboðslega áhugaverð.

Þessi hrifning kemur ekki síst til vegna þess að í gegnum slík verk kynntist Rut því hvernig skáldskapur getur leynt á sér og falið í sér margræða merkingu. Hún segir ákveðinn blæ fylgja fantasíunni sem birtist til dæmis í því að hinseginleikinn er gjarnan falinn á bak við dulu hins yfirnáttúrulega. Í slíku tilliti minnist hún sérstaklega á eitt verk sem hafði mikil áhrif á hana við fyrstu kynni:

Ég hef haft mikinn áhuga á bókinni Drakúla eftir Bram Stoker en hún opnaði augu mín fyrir því hvernig við getum notað hið óþekkta og óvæga sem staðgengil til að geta talað undir rós um það sem er raunverulega í gangi.“

Óhætt er að segja að Rut haldi heiðri fantasíunnar og hrollvekjunnar á lofti í þríleiknum þar sem yfirnáttúruleg ógn steðjar stöðugt að sögupersónunum – sem á sama tíma eru að glíma við ýmislegt sem fylgir því að vera á skjön við samfélagið.

Þetta reddast

Rut ákvað skrifa skáldsögur um og til ungmenna en hún segir formið bjóða upp á mikla frásagnargleði og minni höft en mörg önnur. Unglingsárin eru henni hugleikin enda viðburðaríkur, djúpur og flókinn tími. Sjálf las hún mikið á þessum aldri en saknaði þess oft að finna ekki meira úrval af íslensku efni sem höfðaði til hennar. Að vissu leyti er þríleikurinn því skrifaður til yngri útgáfu af Rut með undirliggjandi skilaboðum:

Hey, þetta reddast allt saman, hér er svolítið til að koma þér í gegnum það!

Í þessu samhengi má nefna hversu mikilvægt er að bókmenntir sýni fjölbreytileika mannlífsins og að ungmenni geti speglað sjálfsmynd sína í mismunandi sögupersónum. Skortur á hinseginleika í íslenskum verkum hefur lengi verið áberandi og verk Rutar eru kærkomið innlegg á því sviði. Rut segir málefnið skipta hana miklu máli og að í sögunum felist ákveðið uppgjör gagnvart því óöryggi sem eigin kynhneigð getur valdið. Þá endurspegli þróun persónunnar Lilju reynslu hennar sjálfrar og efnið standi henni því mjög nærri.

Þetta er eiginlega bara tekið upp úr mínum dýpstu hjartarótum. Ég var ofboðslega efins um hver ég væri, hvern ég elskaði og hvernig það væri að vera kynvera sem unglingur. Ég vona að mér hafi tekist að koma því almennilega til skila í gegnum Lilju.

Svartklædd Rut í glæsilegum leðurskóm í útgáfuhófi fyrstu bókarinnar.

Hinseginleikann á mínum forsendum

Upplifun hinsegin einstaklinga er rauður þráður í gegnum þríleik Rutar sem aðspurð segist alltaf hafa langað til að fjalla um hinseginleikann á eigin forsendum. Hún segir að þrátt fyrir að sýnileiki í útgefnu efni hafi aukist til muna á undanförnum árum hryggi það hana að gjarnan séu hinsegin persónur ekki þrívíðar heldur einfaldar. Hún telur framleiðendur meðvitaða um ákallið eftir auknum fjölbreytileika í útgefnu efni en að því sé oft svarað með grunnri persónusköpun sem endurspegli ekki það sem verið er að kalla eftir.

Karakter getur verið fyndinn og sniðugur en kannski ofboðslega þrjóskur og pirraður. Hann er kannski hinsegin sem hliðarvinkill, og við förum út í það, en það er ekki allur persónuleiki hans. Hann er miklu meira en bara kynhneigðin.

Rut vildi gera betur og skapa margbrotnar persónur sem gerðu líka mistök og tækju út þroska á þann hátt sem frásagnarefnið kallaði eftir. Hún viðurkennir þó að hafa fundið til óöryggis, sérstaklega til að byrja með, og að á köflum hafi hún verið hrædd um að henni væri að mistakast framsetningin. Erfiðast fannst henni að leyfa sér að fjalla um upplifanir sem hún sjálf hefur ekki reynslu af. Í þessu samhengi minnist hún sérstaklega á sögupersónuna Rakel sem er samkynhneigð en Rut sjálf er tvíkynhneigð.

Ég hafði miklar áhyggjur af því að ég væri kannski ekki að birta hana almennilega, því hvaða reynslu hef ég af samkynhneigð? Ég talaði við vinkonur mínar og las mér til og svoleiðis. Svo vann ég einhvern veginn í mig þann kjark að geta fjallað um Rakel eins og ég held að hún væri sem persóna, því maður tekur sér alltaf einhvers konar skáldaleyfi. Við verðum að vera meðvituð um hvaðan við fáum efnið sem við erum að nýta til persónusköpunar og bera virðingu fyrir því. Ég reyndi alltaf að hafa það á bak við eyrað að aðgát skal höfð í nærveru sálar.“

Af þessu má sjá að Rut er meðvituð um að hinseginleikinn getur verið vandmeðfarið umfjöllunarefni og að hún vildi vanda vel til verka. Góðar móttökur fyrstu bókarinnar urðu síðan til þess að hún fór að treysta betur á eigið innsæi og leyfði sér meira frelsi í skrifunum.

Þetta er mikil ábyrgð og mig langar að passa mig á því að festast ekki í því að ég þurfi að vera heilög og fullkomin. Því ég er alveg búin að gera asnalega hluti og á mistök sem ég sé gífurlega mikið eftir. Því eins og sögupersónurnar mínar eru gallaðar, er ég gallaður höfundur. Alveg eins og allir aðrir, af því við erum bara gallað fólk. Ég reyni að búa til einhvers konar andrými fyrir mistökin.

Stærsti sigurinn

Þríleikshöfundurinn Rut við útgáfu síðustu bókarinnar í október síðastliðnum þar sem hún þakkaði lesendum sínum fyrir samfylgdina.

Í spjallinu við Rut kom í ljós að markmið hennar með skáldsagnarskrifunum er marglaga og aðdáunarvert – sjálfsmynd, hinseginleiki, unglingsár, fantasía og fleira er lagt undir – og greinarhöfundur þurfti að halda í við sig til að nota ekki of oft orð líkt og mikilvægt og hugleikið. Innt eftir undirliggjandi boðskap fer Rut þessum orðum um verk sín:

Stærsti sigurinn fyrir mig varðandi mína kynhneigð var svolítið að sleppa takinu, bæði hvað mér finnst og líka hvað öðrum finnst. Það er svolítið það sem ég er að gera með þessar stelpur, sem ég held að endurspegli líka bara þroska almennt á þessum árum. Hægt og rólega fer maður úr því að halda að hlutir séu annað hvort eða, svart eða hvítt, og þú ferð að lifa í þægilegu andrými gráa svæðisins.

Rut boðar sátt gagnvart eigin sjálfi og minnir á að örlítið kæruleysi er líka nauðsynlegt. Nú er þríleiknum lokið en aðspurð um framhald segist hún þegar luma á hugmynd ef lesendum takist að gera hana að metsöluhöfundi.

Eftir svona tíu, tuttugu ár mun ég gefa út fjórðu bókina. Þá eru stelpurnar komnar í háskóla og löngu hættar að vera vinkonur, eins og vill því miður oft gerast. Þá þurfa þær að sameina krafta sína á ný því rektor Háskóla Íslands er tannálfurinn og sá tannálfur er illur! Með batnandi tannheilsu Íslendinga hefur hann miklu minna að gera þannig hann er farinn að ræna tönnum úr sofandi munnum landsmanna. Nú er boltinn bara lesenda megin, þið þurfið að gera mig ofboðslega fræga og mikilvæga þannig að bækurnar gleymist ekki og allir muni eftir sögunni!

content-1701

yakinjp


sabung ayam online

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

yakinjp

judi bola online

slot thailand

yakinjp

yakinjp

yakin jp

ayowin

yakinjp id

mahjong ways

judi bola online

mahjong ways 2

JUDI BOLA ONLINE

maujp

maujp

sabung ayam online

sabung ayam online

mahjong ways slot

sbobet88

live casino online

sv388

taruhan bola online

maujp

maujp

maujp

maujp

sabung ayam online

118000156

118000157

118000158

118000159

118000160

118000161

118000162

118000163

118000164

118000165

118000166

118000167

118000168

118000169

118000170

118000171

118000172

118000173

118000174

118000175

118000176

118000177

118000178

118000179

118000180

118000181

118000182

118000183

118000184

118000185

118000186

118000187

118000188

118000189

118000190

118000191

118000192

118000193

118000194

118000195

118000196

118000197

118000198

118000199

118000200

128000166

128000167

128000168

128000169

128000170

128000171

128000172

128000173

128000174

128000175

128000176

128000177

128000178

128000179

128000180

128000181

128000182

128000183

128000184

128000185

128000186

128000187

128000188

128000189

128000190

128000191

128000192

128000193

128000194

128000195

138000131

138000132

138000133

138000134

138000135

138000136

138000137

138000138

138000139

138000140

138000141

138000142

138000143

138000144

138000145

138000146

138000147

138000148

138000149

138000150

138000151

138000152

138000153

138000154

138000155

138000156

138000157

138000158

138000159

138000160

148000166

148000167

148000168

148000169

148000170

148000171

148000172

148000173

148000174

148000175

148000176

148000177

148000178

148000179

148000180

148000181

148000182

148000183

148000184

148000185

148000186

148000187

148000188

148000189

148000190

148000191

148000192

148000193

148000194

148000195

168000136

168000137

168000138

168000139

168000140

168000141

168000142

168000143

168000144

168000145

168000146

168000147

168000148

168000149

168000150

168000151

168000152

168000153

168000154

168000155

168000156

168000157

168000158

168000159

168000160

168000161

168000162

168000163

168000164

168000165

178000166

178000167

178000168

178000169

178000170

178000171

178000172

178000173

178000174

178000175

178000176

178000177

178000178

178000179

178000180

178000181

178000182

178000183

178000184

178000185

178000186

178000187

178000188

178000189

178000190

178000191

178000192

178000193

178000194

178000195

178000196

178000197

178000198

178000199

178000200

178000201

178000202

178000203

178000204

178000205

178000206

178000207

178000208

178000209

178000210

188000226

188000227

188000228

188000229

188000230

188000231

188000232

188000233

188000234

188000235

188000236

188000237

188000238

188000239

188000240

188000241

188000242

188000243

188000244

188000245

188000246

188000247

188000248

188000249

188000250

188000251

188000252

188000253

188000254

188000255

198000151

198000152

198000153

198000154

198000155

198000156

198000157

198000158

198000159

198000160

238000031

238000032

238000033

238000034

238000035

238000036

238000037

238000038

238000039

238000040

238000136

238000137

238000138

238000139

238000140

238000141

238000142

238000143

238000144

238000145

238000146

238000147

238000148

238000149

238000150

238000151

238000152

238000153

238000154

238000155

238000156

238000157

238000158

238000159

238000160

238000161

238000162

238000163

238000164

238000165

238000166

238000167

238000168

238000169

238000170

238000171

238000172

238000173

238000174

238000175

content-1701